Öll börn smitast af veirum og bakteríum það er eðlilegt ferli.
Börnin eru að þroska og þjálfa ónæmiskerfið fyrstu árin. Börn sem eru í leikskóla eða daggæslu innan um önnur börn smitast oftar en börn sem eru heima, sér í lagi ef ekki er leikskólabarn á heimilinu.
Gera má ráð fyrir að börn á leikskólaaldri veiktist 6 til 8 sinnum á ári og oft einkennast fyrstu mánuðirnir á leikskóla af veikindum.
Lasið barn þarf á meira næði að halda en venjulega og þarfnast meiri umönnunar. Geti barn ekki tekið þátt í leik og starfi úti að mati foreldra er ráðlagt að barn sé heima.
Sýklalyf eru gagnleg lyf þegar takast þarf á við bakteríusýkingar sem líkaminn ræður ekki við sjálfur. Sýklalyf virka ekki á veiru.
Í og á líkama okkar eru fjöldinn allur af hjálplegum bakteríum sem eru hluti af eðlilegri bakteríuflóru líkamans. Þessar bakteríur valda ekki veikindum heldur eru verndandi í mörgum tilvikum og hjálpa ónæmiskerfinu.
Notkun sýklalyfja hefur áhrif á alla bakteríuflóru líkamans en drepur ekki bara þær bakteríur sem valda veikindunum. Í mörgum tilvikum ræður ónæmiskerfi líkamans við mildar bakteríusýkingar án þess að notuð séu sýklalyf.
Bakteríur eru síflellt að þróast og hafa þær sumar þróað með sér ónæmi við sýklalyfjum. Því er mikilvægt að nota sýklalyf alltaf eins og læknirinn hefur lagt upp með.
Þegar börn veikjast er það í miklum meirihluta (90%) vegna þess að þau smitast af veiru og sýklalyf því gagnslaus í þessum veikindum.
Hiti
Barn með hækkaðan líkamshita, það er yfir 38°C hita, sem hefur verki og slen á ekki að vistast hjá dagforeldri eða í skóla. Ástæðan er fyrst og fremst viðleitni til að draga úr vanlíðan barnsins sem fær meiri umönnun heima og sleppur við áreiti og álag sem fylgir því að vera í skóla eða hjá dagforeldri.
Mikil áreynsla getur orðið til þess að ungt barn fær hita yfir 38° („áreynsluhiti“) með sleni. Það ætti að hressast af stuttri hvíld og með því að drekka vel.
Ef barn fær hita er ráðlagt að vera heima þar til barn hefur verið hitalaust í sólarhring.
Frekari upplýsingar um hita hjá börnum og hitalækkandi lyfjagjöf.
Lyfjagjafir ættu í flestum tilfellum að vera óþarfar í skóla eða hjá dagforeldri. Þegar lyf er gefið þrisvar á dag má gefa miðskammtinn þegar heim er komið, jafnvel þótt meira en 8 tímar eru frá morgunskammtinum.
Undantekningar á þessu geta þó verið lyf sem notuð eru við krömpum, sykursýki, astma, ofnæmi og hugsanlega lyf við ofvirkni. Í slíkum tilfellum er þó ráðlagt að fá skrifleg ummæli eða leiðbeiningar frá lækni sem meðhöndlaði barnið og foreldrum/forráðamönnum þess.
Hvað get ég gert?
Atriði sem foreldrar ættu að huga að:
- Nýfædd börn eru aðdráttarafl fyrir eldri systkini og aðra sem þau sjá. Þau setja hendurnar upp í sig og því er skynsamlegt að kenna eldri systkinum að knúsa og kjassa tásurnar í stað handanna á kornabarninu. Almennt ætti fólk ekki að vera að handfjatla hendur kornabarna nema vera nýbúið að þvo eigin hendur með sápur og vatni.
- Hafa barn á brjósti ef mögulegt er. Barnið fær mótefni í gegnum móðurmjólkina sem dregur úr líkum á öndunarfærasýkingum.
- Þiggja þær bólusetningar sem í boði eru í ungbarnaverndinni. Um fyrirkomulag barnabólusetninga á Íslandi.
- Handþvottur er ein árangursríkasta leiðin til að koma í veg fyrir sýkingar því er mikilvægt að kenna öllu heimilisfólki góðar handþvottavenjur.
- Barn smitar mest þegar það er að veikjast og næstu 3-7 sólarhringa þar á eftir. Barn skal dvelja heima þar til það er orðið hitalaust og líður vel. Þegar barn kemur aftur í skóla eða til dagforeldris er reglan sú að það á að geta tekið þátt í starfi hvort sem er úti eða inni.
Helstu sjúkdómar
Tími frá smiti til einkenna:
- 1-3 dagar.
- Yfirleitt tengt kvefi
Smithætta:
Smithætta fer eftir tegund sýkils og eru veirur langalgengastar. Meðferð jafnan sú sama óháð sýkli:
- Hitabakstur og þrífa gröft
- Nefdropar geta hjálpað
- Sjaldan þarf sýklalyf
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Að því gefnu að barninu líði almennt vel og augneinkenni ekki hamlandi, er ekki ástæða að takmarka vistun sérstaklega vegna þessa.
Frekari upplýsingar um augnbólgu.
Tími frá smiti til einkenna:
Oftast fylgikvilli öndunarfærasýkingar
Smithætta:
Staðbundin miðeyrnabólga er ekki smitandi
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Barnið er hitalaust og líður vel
- Leki úr eyra án þess að barn sér með rör í eyra er ráðlagt að leita til læknis
Frekari upplýsingar um eyrnabólgu.
Tími frá smiti til einkenna:
- 1-2 vikur
- Smithætta er nokkrum dögum áður en útbrot koma fram
Smithætta:
Nokkrum dögum áður en útbrot birtast og þar til útbrot eru komin fram
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Barn hefur verið hitalaust í sólarhring og líður vel
Frekari upplýsingar um fimmtu veikina.
Hverfa yfirleitt af sjálfu sér, en á löngum tíma (hálfu til tveimur árum)
Tími frá smiti til einkenna:
1-6 vikur
Smithætta:
Frá því að vörtur birtast þar til vörtur hverfa
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Engin takmörk
Frekari upplýsingar um vörtur.
Tími frá smiti til einkenna:
2-12 dagar
Smithætta:
Frá því að blöðrur myndast þar til blöðrur eru þornaðar
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Ef barni líður almennt vel og einkenni eru ekki hamlandi, er ekki ástæða að takmarka vistun sérstaklega vegna þessa
Frekari upplýsingar um frunsu
Litlar blöðrur á höndum, fótum og/eða í munni
Tími frá smiti til einkenna:
3-8 dagar
Smithætta:
Smithætta er allt frá nokkrum dögum áður en einkenni koma fram, þangað til að útbrot eru horfin
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Barn hefur verið hitalaust í sólarhring og líður vel
- Útbrot í rénun
Frekari upplýsingar um hand- fót- og munnsjúkdóm.
Tími frá smiti til einkenna:
2-3 vikur
Smithætta:
Nokkrum dögum áður en útbrot birtast þar til bólur eru þornaðar
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Bólur orðnar þurrar og engar nýjar að myndast
Frekari upplýsingar um hlaupabólu.
Tími frá smiti til einkenna:
1-5 dagar
Smithætta:
Daginn áður en einkenni byrja þar til einkenni eru farin
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Barn hefur verið hitalaust í sólarhring og líður vel
Frekari upplýsingar um inflúensu.
Tími frá smiti til einkenna:
1-3 dagar
Smithætta:
Frá því sárin byrja að vessa þar til sárin eru orðin þur
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Þegar sárin eru gróin og skorpurnar detta af
- Sápuþvottur er yfirleitt næg meðferð
Frekari upplýsingar um kossageit.
Meðgöngutími sjúkdóms:
2-14 dagar en algengast er 4-5 dagar
Smithætta:
Smithætta er frá því að barnið er útsett fyrir smiti þar til nokkrum dögum eftir að einkenni sjúkdómsins eru horfin.
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Þegar að barnið einkennalaust og líður vel.
Hér er nánari umfjöllun um covid-19.
Tími frá smiti til einkenna:
1-7 dagar
Smithætta:
Sólarhring áður en einkenni byrja þar til einkenni eru farin
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Barnið hefur verið hitalaust í sólarhring og líður vel
Frekari upplýsingar um kvef.
Tími frá smiti til einkenna:
- 2-8 vikur
Smithætta:
- Frá því að egg klekjast þar til meðferð hefst
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Þegar meðferð er hafin. Mikilvægt er að kemba oft og reglulega.
- Frekari upplýsingar um höfuðlús.
Hár hiti í 3-5 daga sem hverfur snögglega og þá birtast útbrot.
Tími frá smiti til einkenna:
- 1-2 vikur
Smithætta:
- Óþekkt
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Barnið er hitalaust og líður vel.
Frekari upplýsingar um mislingabróður.
Tími frá smiti til einkenna:
Fáeinir dagar
Smithætta:
Börn eru smitandi frá upphafi einkenna þar til tveimur sólarhringum eftir að einkenni eru hætt.
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
48 tímum eftir að einkenni eru hætt og barn er hitalaust og líður vel.
Hér er nánari umfjöllun um niðurgang hjá börnum og ógleði og uppköst.
Ormar sjást oftast snemma nætur.
Tími frá smiti til einkenna:
- 2-6 vikur
Smithætta:
- 2 vikum eftir smit þar til meðferð hefst.
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Daginn eftir að meðferð hefst
- Öll fjölskyldan fær meðferð og aftur 2 vikum síðar
Frekari upplýsingar um njálg.
Tími frá smiti til einkenna:
- 2-4 dagar
Smithætta:
- Frá smiti þar til einkenni hverfa
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Barnið er einkennalaust og líður vel
- Gæta vel að handþvotti
- Gengur að jafnaði yfir á u.þ.b. viku eða tveim eftir að sýklalyf hafa verið tekin inn
Frekari upplýsingar um hálsbólgu.
Tími frá smiti til einkenna:
- Vikur
Smithætta:
- Frá því að útbrot birtast og þar til einkenni eru horfin
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Ef barninu líður almennt vel og einkennin ekki hamlandi, er ekki ástæða til að takmarka vistun.
Tími frá smiti til einkenna:
Fer eftir orsök útbrota
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
Ýmsar orsakir geta verið fyrir útbrotum. Almenn regla fyrir vessandi veiruútbrot er að halda barni heima þar til útbrot eru orðin þurr og engin ný að myndast.
Frekari upplýsingar um útbrot hér.
Tími frá smiti til einkenna:
- Mánuðir
Smithætta:
- Frá því að vörtur birtast og þar til þær hverfa
Hvenær má barn mæta aftur í skóla eða til dagforeldris?
- Engin takmörk
Frekari upplýsingar um vörtur.