Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Salmonella

Kaflar
Útgáfudagur

Salmonella er baktería með yfir 2000 afbrigði. Tvö þeirra, S. Enteritidis og S. Typhimurium eru algengustu afbrigði salmonellusýkingar hér á landi en uppruni smitsins er oftast af erlendum toga. Bakterían veldur einkennum í meltingarfærum. Bæði menn og dýrategundir geta sýkst og það oftar en einu sinni.

Einkenni

Helstu einkenni eru:

  • Hiti  
  • Kviðverkir  
  • Niðurgangur  
  • Ógleði og/eða uppköst 

Einkenni ganga yfirleitt yfir á um 4-5 dögum.

Smitleiðir

  • Algengast er að smitast út frá menguðum matvælum.  
  • Smit getur borist manna á milli. Baktería er að meðaltali um 5-6 vikur til staðar í saur eftir sýkingu. 
  • Þeir sem eru með staðfesta sýkingu eiga ekki fara í sund á meðan einkenni eru til staðar (sérlega mikilvægt fyrir börn sem nota bleyju). 
  • Ef barn í dagvistun greinist með salmonellu skal hafa samband við dagvistunina ef barnið dvaldi þar dagana fyrir veikindi eða var með einkenni í dagvistuninni. 

Salmonellusýking er lögum samkvæmt tilkynningarskyldur sjúkdómur til sóttvarnalæknis. Nánar um smitsjúkdóma.

Meðgöngutími

Í flestum tilfellum er meðgöngutími 1-3 dagar. Hann getur þó verið allt frá 6 klst upp í 10 daga.

Greining

Algengast er að sýkingin sé í hægðum og þá er sent saursýni til greiningar. Ef grunur er um sýkingu á öðrum stað í líkama þá þarf að senda sýni frá sýkingarstað s.s. blóði eða öðrum líffærum. 

Meðferð

Algengast er að einkenni gangi yfir á nokkrum dögum án meðferðar. Í einstaka tilfellum getur verið þörf á stuðningsmeðferð vegna mikilla einkenna frá meltingarfærum, sérstaklega ef einstaklingar fá einkenni þurrks. 

Forvarnir

  • Full elda kjötmeti 
  • Forðast neyslu ógerilsneyddrar mjólkur og mjólkurafurða  
  • Huga að góðu hreinlæti, sérstaklega eftir salernisferðir, eftir snertingu við dýr og fyrir meðferð matvæla 
  • Þvo og/eða afhýða hrátt grænmeti og ávexti fyrir neyslu
  • Þvo áhöld og búnað eftir meðhöndlun á hráu kjöti 

Hvað get ég gert?

  • Drekka vel af vökva til þess að koma í veg fyrir ofþornun. 
  • Frekari ráð sem geta hjálpað við ógleði og uppköstum.  
  • Frekari ráðleggingar um æskilega næringu fyrir fullorðna með niðurgang.  
  • Huga að saltbúskap líkamans með því að drekka vel af vökva sem inniheldur sölt. Til dæmis íþróttadrykki, tærar bollasúpur eða léttsykrað te. Einnig er hægt að kaupa sykursaltvatnsblöndur í apóteki. Best er að drekka oft og lítið í einu. 
  • Huga að handþvotti eftir umönnun fólks með bakteríuna.

Hvenær skal leita aðstoðar?

  • Blóðugur niðurgangur 
  • Einkenni hafa staðið yfir í meira en viku  
  • Einkenni ofþornunar gera vart við sig (dökkt þvag, minnkuð þvaglát, þorsti, þurrkur í slímhúð í munni) 
  • Hiti >38°C hefur verið í meira en sólarhring auk einkenna frá meltingarvegi
  • Matarsýking átti sér stað erlendis þar sem hreinlæti er ábótavant 

Finna næstu heilsugæslu hér