Matarsýking eða matareitrun orsakast af neyslu sýktra matvæla eða drykkjarvatns. Matarsýkingar geta verið alvarlegar en eru það sem betur fer sjaldnast og einkenni hverfa yfirleitt á innan við viku.
Einkenni
Einkenni gera vart við sig innan fárra daga eftir neyslu sýktra matvæla. Stundum byrja einkenni innan nokkurra klukkustunda.
- Ógleði og eða uppköst
- Niðurgangur - hjá börnum - hjá fullorðnum
- Magakrampi
- Hiti - hjá börnum - hjá fullorðnum
- Slappleiki
Orsakir
Erfitt getur verið að útkljá hvort að matarsýking sé frá menguðum mat eða óhreinu drykkjarvatni. Öll matvæli geta valdið matarsýkingu. Matur getur verið sýktur ef:
- Ekki geymdur á réttan hátt, til dæmis ófryst eða kælt
- Er ekki fulleldaður eða upphitaður nægilega vel
- Komið er fram yfir síðasta neysludag, er útrunninn
- Meðhöndlaður með óhreinar hendur eða af veikum einstaklingi
- Stendur við stofuhita of lengi
Einnig geta krydd eða matvörur sem líkaminn er ekki vanur, í bland við ferðalög, álag eða óreglulegan svefn haft áhrif á meltinguna án þess að það teljist til matarsýkingar.
Hvað get ég gert?
- Drekka vel af vatni til að koma í veg fyrir ofþornun
- Huga að saltbúskap líkamans með því að drekka vel af vökva sem inniheldur sölt. Til dæmis íþróttadrykki, tærar bollasúpur eða léttsykrað te. Einnig er hægt að kaupa sykursaltvatnsblöndur í apóteki.
- Hægt er að fá hægðastoppandi lyf í apóteki. Ekki skal taka inn hægðastoppandi ef hiti er til staðar eða ef blóð er í hægðum.
- Taka inn verkjalyf
- Fara eftir ráðleggingum um næringu ef ógleði og uppköst
- Fara eftir ráðleggingum um næringu ef niðurgangur - hjá börnum - hjá fullorðnum
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leita til heilsugæslunnar ef:
- Niðurgangurinn er blóðugur
- Niðurgangur hefur staðið yfir í meira en viku
- Niðurgangur og hiti yfir 38,5°C hefur verið í meira en sólarhring
- Matarsýking átti sér stað erlendis þar sem hreinlæti er ábótavant
- Barn er yngra en 12 mánaða og áhyggjur eru til staðar
Leita til næstu bráðamóttöku ef:
- Kviðverkur er stöðugur eða fer versnandi
- Húðlitur er fölur, gráleitur
- Grunur er um ofþornun
- Barn hefur mögulega innbyrt eiturefni (Símanúmer eitrunarmiðstöðvar 543-2222)
- Barn er þróttlaust og slappt og svarar illa áreiti
- Almennt hreinlæti, sérstaklega handþvottur
- Sýna varúð við meðferð matvæla
- Sýrustig í maganum er að jafnaði lágt til þess að magasýrurnar drepi sýkla sem berast ofan í maga. Lyf sem hafa áhrif á sýrustig í maga hafa þar með áhrif á getu magainnihaldsins til að koma í veg fyrir sýkingar. Þessi lyf auka því líkurnar á matarbornum sýkingum. Ráðlegt er að sleppa þeim eða draga úr notkun þeirra ef ferðast er til landa þar sem hætta er á matarsýkingum. Þetta eru lyf notuð til að vinna bug á brjóstsviða.
- Campylobacter baktería
- Salmonella baktería
- Nóróvírus
- E. coli baktería