Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Hreyfiseðill

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Hreyfingarleysi er einn af mikilvægum áhrifaþáttum algengra sjúkdóma. Hreyfing er mikilvæg sem meðferð eða hluti meðferðar þessara sjúkdóma. Því hafa verið þróaðar ýmsar aðferðir til beita hreyfingu sem meðferð hjá þeim á því þurfa að halda. 

Fyrir hverja er hreyfiseðill?

Hann er fyrir þá einstaklinga sem eru að glíma við sjúkdóma þar sem hreyfing ætti að vera hluti af meðferð svo sem:

Hvernig virkar hreyfiseðill?

Heilbrigðisstarfsmaður getur boðið þér hreyfiseðil ef hann telur að hreyfing ætti að vera hluti af meðferð við þínum sjúkdómi. Hann vísar þér til hreyfistjóra sem er sjúkraþjálfari með aðsetur á heilsugæslunni þinni. Þú hittir hreyfistjórann í einu viðtali þar sem:

  • Möguleikar og geta til hreyfingar eru ræddir og metnir í sameiningu.
  • Framkvæmt er 6 mínútna göngupróf.
  • Farið er yfir leiðbeiningar um hvernig skráningu á hreyfingu er háttað.
  • Sett markmið og útbúin hreyfiáætlun, yfirleitt til þriggja eða sex mánaða. Hreyfiáætlunin byggir á áhuga þínum og getu og ráðleggingum um magn og ákefð hreyfingar sem meðferð við einkennum þínum og/eða sjúkdómi.

Þú skráir hreyfingu þína rafrænt og getur þannig fylgst með hvernig þér gengur miðað við markmiðin sem sett voru. Hreyfistjórinn fylgist einnig með framvindu og gangi mála, veitir aðhald og hvatingu með símtölum og tölvupóstum. Við lok meðferðar tekur hreyfistjóri saman greinagerð og kemur til annarra meðferðaraðila sem meta árangur meðferðarinnar. Hver ávísun hreyfiseðils getur varað í allt að eitt ár.

 

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína