Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Beinþynning

Kaflar
Útgáfudagur

Beinþynning (e. osteoporosis) er sjúkdómur sem einkennist af minnkuðum beinmassa og rýrnun beina sem veldur því að bein brotna auðveldlega. Úlnliðsbrot og samfallsbrot á hrygg eru algengustu brotin ásamt mjaðmabroti. Beinbrot valda takmörkun á hreyfingu og virkni sem veldur oft minni sjálfsbjargargetu og skerðingu á lífsgæðum. Hætta á beinþynningu eykst með aldrinum og eru konur í þrefalt meiri hættu á að fá beinþynningu en karlar.

Einkenni

Beinþynning getur verið einkennalaus og er oft talað um hana sem þöglan sjúkdóm. Hún greinist oft ekki fyrr en fólk hefur brotið bein við lítinn áverka, t.d. við fall á jafnsléttu. Önnur einkenni geta verið bakverkir, kryppa, hæðarlækkun eða aðrar líkamlegar hömlur.

Greining

Beinþynningu er hægt að greina með sértækri röntgenrannsókn þar sem þéttni beinsins er mæld.

Helstu ástæður beinþynningar

Eftirfarandi þættir geta aukið líkur á beinþynningu:

  • Erfðir - Um 70% beinþéttninnar stýrist af erfðum
  • Aldur - Beinþéttni minnkar með aldrinum
  • Breytingaskeið kvenna - Kvenhormónið estrógen er beinverndandi en á breytingaskeiðinu minnkar styrkur þess í líkamanum
  • Skortur á kalsíum og D-vítamíni
  • Óhófleg áfengisneysla
  • Reykingar
  • Hreyfingarleysi
  • Að vera undir kjörþyngd
  • Lyf - sykursterar (prednisolon), skjaldkirtilslyf og flogaveikilyf

Hvað get ég gert?

Eftirfarandi þættir geta minnkað líkur á að fá beinþynningu:

Finna næstu heilsugæslustöð hér.