Svefntruflanir geta verið af ýmsum toga. Tímabundið svefnleysi er algengur kvilli með tilheyrandi dagsyfju og vanlíðan næsta dag. Ástæður svefntruflana geta verið ýmiskonar t.d. áhyggjur, álag, verkir, sjúkdómar, vímuefnaneysla eða aukaverkanir lyfja.
Vaktavinna, óreglulegt eða breytt lífsmunstur getur líka truflað svefn. Svefntruflanir aukast með aldrinum og eru algengar meðal kvenna á breytingaskeiði. Til að leysa vandann er nauðsynlegt að ráðast að rótum hans og reyna að finna út hvað veldur svefnleysinu og ef hægt er að ráða bót á því. Þeir sem þjást af þreytu, dagsyfju og hrjóta mikið ættu að láta kanna hvort um kæfisvefn er að ræða. Oft á tíðum er ástæðan einfaldlega óreglulegar svefnvenjur eða að fólk fer einfaldlega of seint að sofa.
Algengast er að svefnþörf fullorðinna sé 7-8 klst. á sólarhring. Langir daglúrar draga úr góðum nætursvefni.
Einkenni
Helstu einkenni svefntruflana eru:
- Lengri tíma tekur að sofna
- Vakna upp á nóttunni
- Erfiðara er að sofa fram eftir
- Þreyta og dagsyfja
Ítrekaðar martraðir geta einnig orsakað svefntruflanir
Svefnlyf
Notkun svefnlyfja er ekki langtímalausn þar sem virknin minnkar með tímanum. Svefnlyfjanotkun er algengust hjá eldri borgurum sem eru í meiri hættu á aukaverkunum. Notkun svefnlyfja getur haft neikvæðar afleiðingar eins og verri einbeiting og auknar líkur á byltum. Frekari vitneskja um öruggar langtíma lausnir við svefnvanda má finna á Sofðu vel.
Hvað get ég gert?
- Oft er hægt að ráða bót á svefntruflunum með einföldum ráðum sem hver og einn getur sjálfur gert.
- Á svefnnámskeiði Heilsubrúar Heilsugæslunnar er boðið upp á Hugræna atferlismeðferð við svefnleysi.
- Hægt er að fá meðferð við svefnleysi rafrænt á Íslandi. Helstu kostir vefmeðferðar eru að hún er ódýrari, gagnast öllum óháð búsetu og fólk getur stundað meðferðina hvar og hvenær sem er.
Hvenær skal leita aðstoðar?
- Ef svefntruflanir eru viðvarandi skal hafa samband við heilsugæsluna eða sjálfstætt starfandi svefnráðgjafa
Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.
