Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

HPV veirusýking

Kaflar
Útgáfudagur

Til eru yfir 100 gerðir af HPV-veirum (e. human papillomavirus). Af þeim eru 14 tegundir þekktar sem geta þróast yfir í krabbamein t.d. í leghálsi, leggöngum, endaþarmi, ytri kynfærum, hálsi og berkjum. Sumar HPV-veirur orsaka kynfæravörtur en margar valda engum einkennum.

Flestir sem eru kynferðislega virkir smitast af veirunni einhvern tímann á lífsleiðinni og sumir oftar en einu sinni. Líkaminn nær oftast að uppræta sýkinguna sjálfur á nokkrum mánuðum. Ef sýking af völdum ákveðnum veirutegundum hverfur ekki þá eykst hætta á að fá frumubreytingar sem þarf að meðhöndla með skurðaðgerð.

Af þeim sem fá leghálskrabbamein þá er HPV-veiran í 99% tilfellum orsakavaldur og þess vegna eru ungar stúlkur bólusettar gegn veirunni.

Einkenni

Forstigsbreytingar í leghálsi valda ekki augljósum einkennum um sýkingu en hafi breytingarnar þróast yfir í krabbamein geta komið fram einkenni eins og:

  • Blæðing úr leggöngum eftir samfarir
  • Óeðlileg útferð úr leggöngum
  • Verkir í kynfærum

Smitleiðir

HPV-veira smitast við snertingu húðar eða slímhúðar, oftast við kynmök við sýkta húð/slímhúð. HPV getur líka smitast við munnmök og við snertingu kynfæra, t.d. með fingrum. Flestir sýktir einstaklingar vita ekki að þeir eru með HPV-veiru sýkingu eða að þeir séu hugsanlega að smita aðra við kynmök. Hægt er að smitast af fleiri en einni tegund HPV-veiru.

  Aukin hætta á HPV-smiti tengist:

  • Ungur aldur við fyrstu kynmök
  • Fjölda rekkjunauta
  • Reykingum
  • Öðrum kynsjúkdómum, svo sem klamydíu-smiti
  • Veikluðu ónæmiskerfi
Algengi leghálskrabbameins

Að meðaltali greinast 19 konu árlega með leghálskrabbamein á Íslandi og er það fjórða algengasta krabbamein kvenna í heiminum en nær ekki í hóp 10 algengustu krabbameina kvenna á Íslandi. Það er eitt af fáum krabbameinum sem hægt er að greina á forstigi og lækna.

Meðferð

Ekki er hægt að lækna HPV sýkingu en hægt er að fjarlægja frumubreytingar með lítilli skurðaðgerð sem kallast keiluskurður. Það tekur yfirleitt nokkur ár eða áratugi frá því HPV sýking á sér stað þar til leghálskrabbamein myndast. Þess vegna er nauðsynlegt að mæta reglulega í leghálssýnatöku

Forvarnir

Bólusetningin er fyrst og fremst fyrirbyggjandi en læknar ekki sjúkdóma sem orsakast af HPV-sýkingum. Bóluefnið er gefið í tveimur sprautum með að minnsta kosti 6 mánaða millibili. Til að fá sem mesta vörn er mikilvægt að gefa sprauturnar tvær innan árs. 

Þar sem ekki fæst full vörn með bólusetningunni er mikilvægt fyrir konur að fara reglulega í leghálskrabbameinsleit. Tekið er frumustrok frá leghálsi til greiningar forstigsbreytinga eða krabbameins á byrjunarstigi.

Hvað get ég gert?

Konur á aldrinum 23 – 29 ára fá boð í skimun fyrir leghálskrabbameini á 3 ára fresti og konur frá 30 – 64 ára á 5 ára fresti. Boð berast frá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Hægt er að bóka tíma á „Mínum síðum“ á Heilsuvera.is eða hafa samband við þína Heilsugæslu.

Ráðlagt er að fara reglulega í skimun þó að þú hafir fengið HPV bólusetningu. HPV bólusetning minnkar líkur á leghálskrabbameini en getur aldrei komið að fullu í veg fyrir það.

Bólusetning gegn HPV á Íslandi

Bólusetning stúlkna hófst haustið 2011 með bóluefninu Cervarix® sem veitir vörn gegn tveimur stofnum mannapapillomaveiru eða HPV. Árið 2023 var byrjað að bólusetja öll börn við 12 ára aldur með bóluefninu Gardasil9® sem veitir vörn gegn níu stofnum mannapapillomaveiru. Bóluefnið er gefið í grunnskólum landsins.

Til eru tvö ólík bóluefni

Á Íslandi eru markaðssett tvö bóluefni gegn HPV-veirum sem valda krabbameinum, Cervarix® (HPV2) og Gardasil 9® (HPV9). Cervarix veitir vörn gegn tveimur stofnum af HPV-veiru en Gardasil- 9® veitir vörn gegn níu stofnum.

Munur á virkni bóluefnanna

Cervarix® Veitir vörn gegn tveimur afbrigðum af HPV veirum. Gefur um 70% vörn gegn leghálskrabbameini. Er notað á Íslandi, Finnlandi og Noregi.

Gardasil 9® Veitir vörn gegn níu afbrigðum af HPV veirum. Gefur um 90% vörn gegn leghálskrabbameini. Er notað í Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum.

Nánari upplýsingar

Cervarix® veitir afar góða vörn gegn týpum 16 og 18 sem eru algengustu orsakir leghálskrabbameins auk þess sem það veitir vörn gegn nokkrum skyldum veirutýpum sem einnig tengjast krabbameinum vegna svokallaðs krossónæmis (31/33/45). Bóluefnið er einnig líklegt til að verja pilta gegn krabbameinum vegna HPV 16 og 18 en HPV-tengd krabbamein önnur en leghálskrabbamein.

Gardasil 9® er önnur kynslóð bóluefnis gegn HPV og inniheldur mótefnavaka sem vekja svar gegn fimm krabbameinstengdum HPV-týpum til viðbótar við týpur 16 og 18, auk vörtuveira 6 og 11. Bóluefnið Gardasil® hefur sýnt að það ver bæði stúlkur og pilta gegn vörtuveirum og sýkingum vegna krabbameinsvaldandi HPV 16 og 18 en hefur ekki veruleg krossónæmisáhrif gegn öðrum krabbameinstengdum HPV-týpum.

Fyrirkomulag barnabólusetninga.

Geta karlmenn fengið HPV veiru?

Karlmenn fá HPV alveg eins og konur. HPV veldur kynfæravörtum hjá karlmönnum og getur einnig valdið krabbameini í getnaðarlim, endaþarmi, munni og koki.

Ekki er leitað sérstaklega að afleiðingum HPV-sýkingar hjá körlum eins og gert er með leghálskrabbameinsleit hjá konum vegna þess að engar góðar leitaraðferðir eru til fyrir karlmenn og flestar sýkingar hverfa án inngrips. En hér gildir hið almenna; ef einstaklingur hefur einkenni sjúkdóms er ráðlegt að leita til læknis.

Eru drengir bólusettir gegn HPV?

Bólusetning drengja fyrir HPV veiru hófst árið 2023 í almennum bólusetningum á Íslandi fyrir 12 ára börn. Þeir drengir sem eru eldri en óska eftir því að fá bólusetningu gegn HPV geta sent erindi til læknis inn á mínum síðum Heilsuveru og óska þar eftir lyfseðli. Í kjölfarið þarf að panta tíma hjá hjúkrunarfræðingi á heilsugæslunni til að gefa bóluefnið.

Er hægt að fá bóluefni gegn HPV ef fólk er orðið eldra en 12 ára?

Það er hægt að fá lyfseðil fyrir bóluefni gegn HPV-veiru fyrir fólk sem er eldra en 12 ára en fólk þarf að greiða fullan kostnað af lyfinu.