Skimun fyrir leghálskrabbameini

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur
Leghálsskimanir

Á Íslandi greinast um 19 á hverju ári með leghálskrabbamein og um 1.700 með frumubreytingar sem geta þróast í leghálskrabbamein sé ekkert að gert. Algeng einkenni leghálskrabbameins eru m.a. óútskýrðar blæðingar, blæðingar eftir samfarir, breytt útferð og verkir í neðarlega í kviðarholi. Því fyrr sem krabbamein í leghálsi er greint, því betri eru batahorfur. Regluleg skimun fyrir leghálskrabbameini getur lækkað dánartíðni af völdum sjúkdómsins um 80 – 90%.

Öll sem eru með legháls á aldrinum 23 – 29 ára fá boð í skimun fyrir leghálskrabbameini á 3 ára fresti og frá 30 – 64 ára á 5 ára fresti. Boð berast frá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Skimunin er framkvæmd af ljósmóður eða hjúkrunarfræðingi á heilsugæslunni. Hægt er að bóka tíma á „Mínum síðum“ á Heilsuvera.is eða hafa samband við þá heilsugæslu sem hentar best.

Ráðlagt er að fara reglulega í skimun þó að þú hafir fengið HPV bólusetningu. HPV bólusetning minnkar líkur á leghálskrabbameini en getur aldrei komið að fullu í veg fyrir það.

Leghálsstrok

Við skimunina er tekið strok úr slímhúð leghálsins með mjúkum litlum bursta. Sýnatakan sjálf tekur innan við 2 mínútur og er í flestum tilfellum sársaukalaus en sumum konum finnst sýnatakan óþægileg tilhugsun og finna til óþæginda við hana.

Við rannsókn á sýninu er athugað hvort frumubreytingar séu til staðar og eða Human papilloma veira (HPV), en hún er aðalorsök frumubreytinga í leghálsi. Í flestum tilfellum nær líkaminn að vinna á veirusýkingunni en um 10% fá viðvarandi sýkingu sem valdið getur frumubreytingum og síðar krabbameini í leghálsi sé ekkert að gert. Konur finna sjaldnast fyrir því að þær séu með HPV veiru og því mikilvægt að mæta í skimun.

Kostir skimunar

  • Betri batahorfur
  • Því fyrr sem frumubreytingar finnast því fyrr er hægt að fylgjast með þróun þeirra og grípa inn í ef og þegar þörf krefur.

Ókostir skimunar

  • Óþægindi við sýnatöku – sumum finnst skimunin óþægileg þó lítill sársauki fylgi henni.
  • Áhyggjur meðan beðið er eftir niðurstöðum – Það tekur um 3 vikur að rannsaka sýni.

Niðurstaða skimunar

Niðurstaða úr sýnatökunni kemur inná „Mínar síður“ á Heilsuvera.is

Neikvæð niðurstaða merkir að ekki fundust frumubreytingar eða HPV veira við skoðun á sýninu. Ef niðurstaða er neikvæð færð þú boð í næstu skimun eftir 3 eða 5 ár eftir aldri þínum.

Jákvæð niðurstaða merkir að frumubreytingar eða HPV veira hafi fundist í sýninu. Í framhaldi af því er þér boðið sérstakt eftirlit eða meðferð eftir því hver niðurstaðan var.

  • Vægar frumubreytingar – fylgst með þróun breytinganna með fleiri sýnatökum en í flestum tilfellum ganga þær til baka, þ.e. líkaminn vinnur á sýkingunni.
  • Alvarlegar frumubreytingar eru oft meðhöndlaðar með keiluskurði til að fjarlægja sýkta svæðið en hafi krabbamein þegar myndast er þér boðin meðferð. Meðferðin getur verið fólgin í skurðaðgerð, geislameðferð eða lyfjameðferð.

Stöku sinnum getur komið fyrir að ekki sé hægt að rannsaka sýnið t.d. ef það reynist of lítið. Í þeim tilfellum er gefinn nýr tími í sýnatöku.

Mögulegt er að fá leghálskrabbamein, jafnvel þó niðurstöður skimana hafi verið eðlilegar. Því er mikilvægt að þú hafir samband við heilsugæsluna eða kvensjúkdómalækni finnir þú fyrir óeðlilegum verkjum í neðri hluta kviðarhols, óvenjulegum blæðingum eða breyttri útferð.

Nánari upplýsingar

Hafir þú spurningar tengdar leghálsskimunum, er hægt að hafa samband við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana í síma 513 6700, alla virka milli milli kl. 8:30 – 12:00.

Var þetta efni hjálplegt?
Markmið vefsins er að veita upplýsingar um öll mál er varða heilsu. Allar ábendingar til að bæta vefinn eru vel þegnar.