Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Hár blóðþrýstingur

Kaflar
Útgáfudagur

Hár blóðþrýstingur (e. hypertension) eða háþrýstingur er algengt ástand, sérstaklega hjá fullorðnum einstaklingum. Háþrýstingur getur verið einkennalaus en hann eykur líkur á hjartaáfalli, heilablóðfalli og nýrnasjúkdómum. 

Einkenni

Háþrýstingur er oft einkennalaus og getur fólk haft háþrýsting árum saman án þess að taka eftir því. Ástandið getur samt verið alvarlegt og koma einkenni jafnvel ekki fram fyrr en háþrýstingurinn er farinn að skaða önnur líffæri. Helstu einkenni geta þá verið:

Blóðþrýstingsgildi

Tvær tölur eru notaðar til að skýra blóðþrýsting, t.d. 140/90. Hærri talan segir til um þrýstinginn í slagæðunum þegar hjartað dregst saman, en lægri talan er þrýstingurinn í slagæðunum þegar hjartað er í slökun.

Taflan hér að neðan sýnir viðmið fyrir blóðþrýsting:

Blóðþrýstingur

Efra gildi

Neðra gildi

Háþrýstingur 

140 eða hærra

90 eða hærra

Hækkaður

120-139

80-89

Eðlilegur

119 eða lægra 

79 eða lægra

Taflan hér að neðan sýnir viðmið fyrir blóðþrýsting:

Blóðþrýstingur

:

Háþrýstingur 

Efra gildi

:

140 eða hærra

Neðra gildi

:

90 eða hærra

Blóðþrýstingur

:

Hækkaður

Efra gildi

:

120-139

Neðra gildi

:

80-89

Blóðþrýstingur

:

Eðlilegur

Efra gildi

:

119 eða lægra 

Neðra gildi

:

79 eða lægra

Meðferð

Ef læknir hefur mælt með blóðþrýstingslækkandi lyfjum þá er mikilvægt að taka þau samkvæmt ráðleggingum. Ef lyfin valda aukaverkunum, þá skal ræða það við lækni, sem metur hvort gera þurfi breytingar í skammtastærð eða breyta um lyf.

Regluleg inntaka á blóðþrýstingslækkandi lyfjum getur komið í veg fyrir hjartaáfall eða heilaslag og þar með bjargað lífi þínu.

Hvað get ég gert?

Hægt er að hafa áhrif á blóðþrýsting með því að:

  • Létta sig - ef fólk ert í yfirvigt
  • Velja fituminni fæðu og meira af grænmeti og ávöxtum
  • Minnka saltneyslu
  • Hreyfa sig í 30 mín á dag, flesta daga
  • Takmarka áfengisdrykkju 

Hér eru ráð til að aðstoða þig við að breyta venjum þínum.

Gott er að fá sér blóðþrýstingsmæli til að fylgjast með blóðþrýstingnum heima. Ef fylgst er reglulega með eigin blóðþrýstingi er hægt að bregðast fyrr við ef breytingar eru á blóðþrýsting. 

Blóðþrýstingsmæling heima:

  • Blóðþrýstingsmælar fást í apótekum og ýmsum heilsuvörubúðum
  • Setjast niður og hvíla sig í 5 mínútur áður en mæling hefst
  • Gæta þess að það séu í það minnsta 30 mínútur liðnar frá síðustu máltíð, æfingu, baði, reykingum eða áfengis neyslu
  • Fylgja leiðbeiningum um staðsetningu mælis á hendi og mæla
  • Skrá mælinguna
  • Mæla blóðþrýsting reglulega, ávallt á sama tíma dagsins
  • Skrá mælingarnar niður og koma með þær í næstu heimsókn á heilsugæsluna. Hægt er að skrá mælingarnar inn á mínar síður á Heilsuveru.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leita til heilsugæslu ef:

  • Reglulegar blóðþrýstingsmælingar eru yfir 140/90 skal hafa samband fljótlega við heilsugæsluna 
  • Blóðþrýstingsmælingar eru í kringum 180/120 skal hafa samband strax við heilsugæsluna 

Hafa skal strax samband við heilsugæsluna þína ef blóðþrýstingsmælingar eru yfir 140/90 og ef eitt eða fleiri af eftirfarandi einkennum eru til staðar:

  • Sjóntruflanir
  • Höfuðverkur, einkum á morgnana
  • Ógleði, uppköst
  • Sljóleiki eða skert meðvitund
  • Erfiðleikar með tal
  • Erfiðleikar með öndun
  • Verkir í brjósti, baki eða síðu
  • Brúnt eða blóðugt þvag

Finna næstu heilsugæslustöð.

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.