Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Gildi hreyfingar - meðganga

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Regluleg hreyfing bæði verndar gegn ýmsum andlegum og líkamlegum kvillum og bætir líðan. Hreyfing er hluti af heilbrigðu líferni og því ættu allar konur að hreyfa sig reglulega á meðgöngu. Regluleg hreyfing við hæfi hefur jákvæð áhrif fyrir móður og barn á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu og margt bendir til þess að hún dragi úr ýmsum fylgikvillum meðgöngu:

  • Bætir blóðflæði og súrefnisflutning hjá móður og barni
  • Bætir hitastjórnun líkamans
  • Viðheldur eða eykur orku
  • Dregur úr þreytu
  • Dregur úr bakverkjum
  • Dregur úr líkum á hægðatregðu
  • Minnkar líkur á æðahnútum
  • Minnkar líkur á bjúgsöfnun
  • Minnkar líkur á streitu
  • Minnkar líkur á kvíða
  • Minnkar líkur á þunglyndi
  • Bætir svefn 
  • Konur í góðri þjálfun þola betur það líkamlega álag sem fylgir fæðingunni og barnið nýtur gjóðs af því.

Ljósmóðir í síma 513-1700 alla virka daga milli 10-12