Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Reyklaust tóbak

Kaflar
Útgáfudagur
  • Munntóbak og annað reyklaust tóbak inniheldur nikótín sem er vanabindandi efni. Yfir daginn fá þau sem nota reyklaust tóbak að meðaltali álíka mikið og jafnvel meira nikótín í líkamann og þau sem reykja sígarettur.
  • Reyklaust tóbak myndar fíkn eins og reyktóbak og fólk verður háð því með sama hætti.
  • Ungt fólk, sem notar munntóbak, finnur svipaða og jafnvel enn meiri nikótínþörf og fráhvarfseinkenni og þau sem reykja sígarettur. Fyrir bragðið eiga notendur munntóbaks erfitt með að hætta notkuninni.
  • Reyklaust tóbak inniheldur um 2500 efni og meðal annars krabbameinsvalda og ýmis eiturefni. Um 28 krabbameinsvaldandi efni hafa fundist í reyklausu tóbaki.
  • Aðal krabbameinsvaldarnir og þeir sem mest er af eru afar skæðir heilsuspillar. Þetta eru efni sem finnast eingöngu í tóbaki, svonefnd N-nítrósamín. Magn þeirra er dálítið mismunandi eftir því hvaða tóbak er um að ræða.
  • Krabbameinsvaldarnir í reyklausu tóbaki geta valdið briskrabba, krabbameini í munni og krabbameini í vélinda. Reyklaust tóbak, þar á meðal sænska munntóbakið, veldur tannholdsbólgu, tannskemmdum, tannmissi, tannholdsrýrnun, fæðingu fyrir tímann og eykur líkur á meðgöngueitrun hjá bamshafandi konum. Sumar vísindarannsóknir benda til að notkun á reyklausu tóbaki geti tengst hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki og efnaskiptavillu. 
  • Þau sem nota munntóbak auka hættuna á að fá krabbamein í munnhol og briskirtil að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
  • Notkun munntóbaks eykur hættuna á krabbameini í brisi um allt að 67%.

Hægt er að óska eftir meðferð og stuðning við að hætta tóbaksnotkun á netspjalli hér á síðunni og í síma 5131700. Biðtími er 2 til 3 virkir dagar. 


Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína