Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Kólera

Kaflar
Útgáfudagur

Kólera (e. Cholera) er sýking af völdum Vibrio Choler bakteríu. Bakterían berst með menguðu vatni og matvælum í smáþarmana og veldur miklum vatnskenndum niðurgangi. Eiturefnin sem bakterían gefur frá sér hefur slæm áhrif á slímhúð þarma. 

Einkenni

  • Niðurgangur

Einkenni koma fram 12 klukkustundum til 5 dögum eftir að sýking hefur borist í fólk. Um 90% þeirra sem fá bakteríuna í sig hafa lítil eða væg einkenni og lagast án meðferðar. 

  • Illalyktandi, vatnskenndur niðurgangur kemur hjá innan við 10% þeirra sem veikjast en fæstir fá svæsin einkenni.

Svæsinn niðurgangur getur leitt til ofþornununar. Helstu einkenni þurrks eru:

  • Hraður hjartsláttur
  • Aukin þorstatilfinning
  • Þurr húð
  • Uppköst
  • Stundum ruglástand

Vökvatap getur leitt til losts og dauða á örfáum klukkustundum fái fólk ekki viðeigandi meðferð. 

Smitleiðir

  • Mengað drykkjarvatn
  • Neysla á sjávarfangi úr menguðu vatni - einkum skelfisk
  • Neysla á matvöru sem sýkt fólk hefur meðhöndlað
  • Einstaka smit getur orðið á milli manna. Bakteríurnar eru til staðar í hægðum smitaðra í 1-10 daga eftir sýkingu án meðferðar og geta borist aftur út í umhverfið og hugsanlega smitað annað fólk.

Kóleru sýkingar eru afar sjaldséðar á vesturlöndum en sjúkdómurinn er landlægur í þróunarlöndunum þar sem hreinlæti er ábótavant og vandamál er með vatnsveitur eða skólpkerfi. Faraldrar geysa stundum eftir náttúruhamfarir eins og eldgos og jarðskjálfta, þegar vatns- og skolplagnir fara í sundur. Flestir kóleru faraldrar verða í:

  • Afríku
  • Asíu, sérstaklega á Indlandi
  • Suður og Mið-Ameríku 

Greining

Kólera er greind með blóð- og saursýni.

Meðferð

  • Vökvagjöf
  • Sýklalyfjagjöf

Mikilvægt er að hefja meðferð um leið og svæsinna einkenna verður vart til að koma í veg fyrir ofþornun. Dánartíðni er há meðal þeirra sem ekki fá meðferð við slæmum einkennum kóleru.  

Forvarnir

  • Bursta tennurnar með drykkjarvatni úr flösku eða soðnu vatni
  • Drekka vatn úr flöskum með öruggu innsigli eða soðið vatn
  • Hreinlæti getur komið í veg fyrir smit á ferðalögum á svæðum þar sem kólera geysar
  • Reglulegur handþvottur með hreinu vatni og sápu, einkum eftir salernisferðir, fyrir matseld og áður en matar er neytt.
  • Bólusetning í undantekningartilvikum

Forðast:

  • Neyslu á ósoðnu og hráum ávöxtum og grænmeti þ.m.t. salati sem ekki hefur verið þvegið með hreinu vatni.
  • Að borða skelfisk og sjávarfang úr mögulega menguðu vatni eða sjó
  • Sleppa ís og ísmolum  

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leitaðu á heilsugæslu eða bráðamóttöku ef mikill vatnskenndur niðurgangur er til staðar eftir ferðalag á svæði þar sem kólera er landlæg.

Bóluefni
  • Er í vökvaformi og gefið sem drykkur
  • Tveir skammtar eru gefnir fullorðnum með 1-6 vikum á milli skammta.  
  • Mikilvægt er að fá báða skammta fyrir brottför
  • Virkni bóluefnis eru 2 ár 

Hvað get ég gert?

  • Drekka vel af vökva sem inniheldur sölt
  • Passa upp á hreinlæti