Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Hand-, fót- og munnsjúkdómur

Kaflar
Útgáfudagur

Hand-, fót og munnsjúkdómur eða blöðrumunnbólga með útbrotum (e. hand, foot and mouth disease) er algengur veiru sjúkdómur hjá ungum börnum en fullorðnir geta einnig smitast.
Veikindin ganga yfirleitt yfir á 7-10 dögum.

Einkenni

  • Hálssærindi
  • Hiti - hjá börnum - hjá fullorðnum
  • Kyngingarerfiðleikar - borða og drekka minna vegna særinda í hálsi
  • Meira slef hjá litlum börum
  • Sár í munni
  • Húðútbrot með blöðrum á höndum og fótum og/eða koki

Sjúkdómurinn byrjar yfirleitt með vægri hitahækkun, lystarleysi, almennum slappleika og særindum í hálsi.

Um 1-2 dögum eftir að hiti kemur myndast sár í munni. Sárin byrja sem rauðir dílar sem verða svo að blöðrum og svo sárum á tungu, góm og innanverðum kinnum en er þó yfirleitt helst í kokinu. Sárin geta verið sársaukafull og gera það erfitt að drekka og borða.

Húðútbrot, rauðir flekkir, oftast í lófum og á iljum. Útbrot geta einnig myndast á rasskinnum og í nárum. Útbrotin verða svo að hvítum eða gráleitum blöðrum. Stundum er vökvi í blöðrunum. Útbrotin geta verið annað hvort á húð, í munni eða bæði í munni og á húð. Yfirleitt er ekki kláði í útbrotunum.

Hand-, fót- og munnsjúkdómur

Smitleiðir

  • Hluti þeirra barna sem smitast eru einkennalaus en geta smitað frá sér
  • Snertismit með beinni snertingu við vessa frá nefi, hálsi, blöðrum og með hægðum
  • Smithætta er allt frá nokkrum dögum áður en einkenni koma fram, þangað til að útbrot eru horfin
  • Veiran skilst út með hægðum í allt að 6 vikur eftir að einkenni eru horfin

Algengt er að sjúkdómurinn gangi í litlum faröldrum einkum á haustin. Tími frá smiti þar til einkenni koma fram er 3-8 dagar. Einstaka sinnum getur veiran valdið heilahimnubólgu. Hægt er að smitast oftar en einu sinni. 

Greining

Útbrot hand-, fót og munnsjúkdóms eru einkennandi og byggir greiningin á þeim. Erfitt getur verið að greina sjúkdóminn hjá börnum ef þau hafa ekki sígild einkenni. Einstaka sinnum er tekið veirustrok úr hálsi eða sári til að staðfesta greiningu.

Meðferð

  • Engin sérstök meðferð er til gegn veirunni. Sjúkdómurinn er oftast vægur og í flestum tilfellum batnar hann á 7-10 dögum.
  • Einkennameðferð felst í því að draga úr óþægindum sem geta fylgt sýkingunni. Það getur verið hjálplegt að nota verkjalyf eins og paracetamól og íbúprófen. Gefa lyf sem minnka sársauka vegna sára í munni, til dæmis deyfigel og sprey. 

Hvað get ég gert?

  • Forðast snertingu við útbrot og blöðrur
  • Drekka vel til að koma í veg fyrir ofþornun 
  • Gefa börnum mjúkan og/eða kaldan mat eins og jógúrt eða íspinna.
  • Forðast heitan og kryddaðan mat og súra drykki
  • Halda barni heima þar til það hefur verið hitalaust í sólarhring og útbrot minnka

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leita til heilsugæslu ef:

  • Grunur er um hand-, fót- og munnsjúkdóm og:
    • Barn er undir 6 mánaða aldri 
    • Barnshafandi kona er veik
    • Ónæmiskerfið er veiklað  
    • Hrollur og hár hiti 
  • Einkenni eru svæsin
  • Einkenni eru ekki batnandi eftir 7-10 daga

Leita til bráðamóttöku ef:

Finna næstu heilsugæslu

Forvarnir
  • Reglulegur handþvottur dregur verulega úr hættu á smiti, einkum eftir að hafa skipt á bleyju hjá barninu 
  • Hver notar sitt handklæði til að drag úr smithættu
  • Hósta og hnerra í bréfþurrku og henda henni strax eftir notkun 
  • Gæta hreinlætis í umhverfi sýktra með vönduðum þrifum á snertiflötum
Barnshafandi konur

Barnshafandi konur eru yfirleitt ekki í hættu vegna hand-, fóta- og munnsjúkdómsins. Þó er rétt að takmarka umgengni við smitaða af eftirfarandi ástæðum:

  • Hár hiti á fyrstu þremur mánuðum meðgöngu getur verið skaðlegur fóstri
  • Ef móðir greinist skömmu fyrir fæðingu getur barnið fæðst með væg einkenni