Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Fyrir samfarir með nýjum aðila

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Öruggt kynlíf þarfnast undirbúnings og því er mikilvægt fyrir fólk að ræða um getnaðarvarnir og hvernig skal koma í veg fyrir kynsjúkdómasmit

Að tala um kynlíf á ekki að vera óþægilegt. Ráðlagt er að ræða hluti eins og getnaðarvarnir, kynsjúkdóma, hvað ykkur líkar og hvað ekki svo væntingum til kynlífs sé uppfyllt. Það getur hjálpað til við að taka sameiginlega ákvörðun um það sem hentar báðum aðilum.

Hvenær?

Gott er að velja stað og stund þar sem þið getið talað saman án þess að verða trufluð. Ekki bíða með að tala um kynlíf þar til kynlíf er að eiga sér stað. Þá er möguleiki á að taka ákvörðun í flýti sem séð er eftir.

Ef kynlíf er þegar hluti af sambandi er ráðlagt að tala um kynlíf við maka til að stuðla að heilbrigðu sambandi.

Hvernig?

Til að hefja samtal um kynlíf er hægt að nota eftirfarandi setningar.

  • Hefur þú áhuga á kynlífi með mér?
  • Mig langar að stunda kynlíf mér þér. Hefur þú spáð í það?
  • Við ættum að ræða um öruggt kynlíf ef við ætlum að hafa samfarir.
  • Vilt þú stunda kynlíf?
  • Ættum við að fara í kynsjúkdómapróf áður en við höfum samfarir?

Það er mikilvægt að ræða öruggt kynlíf óháð kyni en kynsjúkdómar geta smitast á milli í öllum tilvikum. Ráðlagt er að finna út hvort þú ert í hættu að smitast af kynsjúkdómi:

  • Áður en við höfum samfarir er svolítið sem ég þarf að spyrja þig um. Hefur þú farið í kynsjúkdómapróf? Hefur þú fengið kynsjúkdóm sem þú veist um?

Ef grunur er um smit eða staðfest smit þarf að tilkynna aðila og fresta kynlífi þar til búið er að meðhöndla smit eða staðfesta að smit átti sér ekki stað:

  • Áður en við höfum samfarir er svolítið sem ég þarf að segja þér.
  • Getum við talað um svolítið áður en við höfum samfarir?

Einlægt samtal áður en til kynmaka kemur eykur líkurnar á að upplifunin verði góð.

Getnaðarvarnir

Ef koma á í veg fyrir þungun þarf að ræða getnaðarvarnir

Heilsubrú heilsugæslunnar bíður upp á námskeið í getnaðarvörnum. Einnig er hægt að fá ráðgjöf um getnaðarvarnir hjá heimilislækni, hjúkrunarfræðingi, ljósmóður eða farið til kvensjúkdómalæknis. 

Skyndikynni

Ef möguleiki er á samförum við nýjan aðila skal hafa smokka meðferðis. Ekki hafa samfarir við nýtt fólk nema smokkur sé notaður, hann er er eina leiðin til að draga úr líkum á kynsjúkdómasmiti sé hann rétt notaður. 

Ráðlagt er að nefna að smokkur skal vera notaður áður en kynfærin snertast. Það þarf bara eina snertingu til að smitast af kynsjúkdómi. Ef notuð eru hjálpartæki þarf að gæta þess að þau séu hrein og örygg í notkun

Ráðlagt er að hugsa um það fyrirfram hvenær skal ræða um smokkanotkunina. Það er ágætt að ákveða einhverja línu sem þú ferð ekki yfir nema ræða notkun á smokki. Gæti til dæmis verið: Ég ræði smokkinn áður en ég fer úr fötum eða áður en rennilásinn á buxunum fer niður.