Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Tríkómónas sýking

Kaflar
Útgáfudagur

Tríkómónassýking (e. Trichomoniasis) er kynsjúkdómur sem orsakast af sníkjudýrinu Trichomonas vaginalis.

Einkenni

Um helmingur smitaðra fá engin einkenni en geta samt sem áðursmitað aðra.

Einkenni eru mismunandi milli kynja.

Einkenni hjá konum:

  • Aukin útferð frá leggöngum
  • Froðukennd útferð
  • Illa lyktandi útferð eða breyttur litur á henni
  • Sviði við þvaglát
  • Verkir í leggöngum við kynmök
  • Óþægindi á kynfærasvæði svo sem bólga og/eða kláði við leggögn eða barma

Einkenni hjá körlum:

  • Verkir við þvaglát eða sáðlát
  • Tíðari þvaglát
  • Útferð frá getnaðarlim
  • Óþægindi, bólga eða roði á getnaðarlim eða undir forhúð

Smitleiðir

Kynsjúkdómurinn smitast við óvarin kynmök eða með óvörðum kynlífstækjum sé þeim deilt milli aðila. Ekki er talið að sjúkdómurinn smitist með munnmökum.

Meðgöngutími

Einkenni koma oftast fram innan mánaðar frá smiti.

Greining

Líkamsskoðun kynfæra og/eða sýnataka frá kynfærum 

Ef viðkomandi greinist með sýkinguna er mikilvægt að smitrakning fari fram svo að fyrri rekkjunautar geti farið í skoðun og fengið meðhöndlun við hæfi.

Meðferð

  • Sýklalyfjameðferð

Hvað get ég gert?

Ef grunur er um tríkómónas sýkingu eða ef óskað er eftir að láta skima fyrir kynsjúkdómum er hægt að bóka tíma á heilsugæslu eða hjá göngudeild kynsjúkdóma Landspítalans í síma 543-6050 milli kl 08:15-15:00 eða á smáforriti Landspítalans. 

Finna næstu heilsugæslu hér