Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Stífkrampi

Kaflar
Útgáfudagur

Stífkrampi (e. tetanus) er alvarleg sýking sem orsakast af bakteríu sem nefnist Clostridium tetani. Baktería þessi er til staðar víða í náttúrunni, svo sem í jarðvegi og húsdýraskít en hún finnst í þörmum manna og dýra (sem eru grasætur) án þess að valda þar skaða. Þegar bakterían berst í sár framleiðir hún eitur sem leggst á miðtaugakerfi manna, veldur stífleika og krömpum sem geta verið lífshættulegir.

Mikilvægt

Ef meira en 5 ár eru liðin frá bólusetningu er ráðlagt að fá örvunarskammt ef óhreinindi úr jarðvegi komast í sár. Á mínum síðum Heilsuveru getur þú nálgast yfirlit yfir þínar bólusetningar.

Einkenni

Helstu einkenni:

Önnur einkenni:

  • Stífleiki í kjálka
  • Samdráttur í andlitsvöðvum
  • Erfiðleikar við að kyngja
  • Öndunarerfiðleikar

Kramparnir og stífleikinn geta breiðst út um allan líkamann s.s. til kvið- og bakvöðva og valdið öndunar- og hjartastoppi.

Smitleiðir

Hætta er á smiti ef óhreinindi úr jarðvegi komast í sár. Bakteríur búa um sig í sárinu og framleiða eitur sem berst með blóðrásinni um líkamann og leggst einkum á miðtaugakerfið og vöðva. Frá því að smit verður geta liðið allt frá einum degi upp í einn mánuð fyrir einkenni að koma fram en algengast er að þau komi fram eftir 6-8 daga. Smit berst ekki á milli manna.

Greining

Sjúkdómurinn er yfirleitt greindur af sögu og einkennum. Hægt er einnig að greina bakteríuna í stroki frá sárinu.

Meðferð

Til er móteitur sem virkar ef nægilega fljótt er gripið til þess. Önnur meðferð er sárameðferð, sýklalyf og lyf við krömpum. Alvarleg sýking af völdum stífkrampa krefst innlagnar á sjúkrahús.

Forvarnir

Bólusetning gegn stífkrampa er hluti af barnabólusetningum. Stífkrampi er nánast óþekktur hérlendis enda veitir bólusetning gegn honum öfluga vörn. Almennt eru aukaverkanir af barnabólusetningum vægar. 

Sýkingar af völdum bakteríunnar eru sjaldgæfar í þeim löndum þar sem bólusetning gegn henni er almenn en í þeim löndum sem ekki er bólusett er dánartíðni há.

Almennt er mælt með endurbólusetningu ef liðin eru meira en 10 ár frá síðustu bólusetningu. 

Á mínum síðum Heilsuveru getur þú nálgast yfirlit yfir bólusetningar þínar frá 2004 til dagsins í dag.

Mælt er með örvunarskammti fyrir fólk sem fær óhreinindi í sár (hruflar húð, fær bit eða klór) ef meira en 5 ár eru liðin frá síðustu bólusetningu og ef fólk veit ekki hvenær síðasta bólusetning var. 

Finna næstu heilsugæslustöð eða bráðamóttöku hér.