Magabólga (e. gastritis) er þegar slímhúðin í maganum er ert og bólgnar upp. Slíkt getur valdið verk í kvið og frekari óþægindum.
Einkenni
- Kviðverkir
- Meltingartruflanir
- Minnkuð svengdartilfinning
- Uppgangur
- Uppköst
- Uppþemba
- Ógleði
- Vindgangur
Orsök
- Bakteríusýking af völdum bakteríu sem nefnist helicobacter pylori (H. pylori)
- Inntaka bólgueyðandi lyfja
- Magabólgur af völdum sjálfsónæmiskvilla
- Mikil streita eða alvarleg veikindi
- Óhófleg áfengisneysla
Greining
- Blóðprufa
- Hægðasýni
- Magaspeglun
- Öndunarpróf
Meðferð
Meðferð fer eftir orsök magabólgunnar, dæmi um meðferð:
- Sýklalyf
- Magasýruhemjandi lyf. Hægt er að fá ýmis magasýruhemjandi lyf í lausasölu í apóteki, gott að ráðfæra sig við lyfjafræðing ef óvissa er um notkun slíkra lyfja
Hvað get ég gert?
- Forðast brasaðan/feitan-, sterkan- eða súran mat
- Hækka undir höfðalagi þegar lagst er útaf
- Hætta að reykja
- Minnka eða hætta áfengisneyslu
- Minnka neyslu koffíndrykkja svo sem kaffi, te, gosdrykkja og orkudrykkja
- Takmarka inntöku bólgueyðandi lyfja. Hafa samband við heilbrigðisstarfsmann sé regluleg þörf á inntöku bólgueyðandi lyfja vegna verkja
- Vera í kjörþyngd
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leita á næstu heilsugæslu ef eftirfarandi er til staðar:
- Kviðverkir eða meltingarónot sem staðið hafa yfir í viku eða lengur
- Kviðverkir fara versnandi
- Tíð kviðverkjaköst
Ert með einkenni magabólgu ásamt eftirfarandi einkennum:
- Fyrirferð í kvið
- Minnkuð matarlyst
- Verkir eða erfiðleikar við það að kyngja
- Þyngdartap án þess að hafa reynt á það sérstaklega
Ómeðhöndluð magabólga getur leitt til magasárs.
Leita á næstu bráðamóttöku ef eftirfarandi er til staðar:
- Blóðug uppköst
- Sársaukafullur kviðverkur eða brjóstverkur, sem kom fram skyndilega
- Svartar og verulega lyktarmiklar hægðir
Finna næstu heilsugæslu hér.