Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Leggangaþurrkur

Kaflar
Útgáfudagur

Margar konur finna fyrir þurrki í leggöngum einhvern tímann á lífsleiðinni. Þurrkur í leggöngum stafar oft af skorti á kvenhormóninu estrógeni og því er algengt að konur finni fyrir þessum einkennum eftir tíðahvörf. Hætta á leggangaþurrki eykst hjá konum:

  • Ef eggjastokkar hafa verið fjarlægðir
  • Með barn á brjósti
  • Í krabbameinslyfjameðferð
  • Sem taka ýmis lyf sem hafa áhrif á hormónabúskapinn, eins og ákveðin getnaðarvarnalyf (Depo-Provera) eða lyf sem notuð eru til að meðhöndla legslímuflakk

Einkenni

Einkenni geta verið ólík eftir konum en þau geta verið:

  • Kláði eða eymsli í leggöngum eða við leggangaopið
  • Óþægindi eða sársauki við samfarir
  • Tíðari þvaglát
  • Tíðari þvagfærasýkingar 

Hvað get ég gert?

  • Sleipiefni mýkja slímhúð legganganna og minnka núning, sem leiðir til minni óþæginda við samfarir. Mælt er með því að nota vatnsleysanleg- eða sílíkon sleipiefni þegar þau eru notuð með smokkum og öðrum latex getnaðarvörnum. Sleipiefni eru ýmist borin inn í leggöng, við leggangaopið eða sett beint á lim eða fingur bólfélagans. Fást án lyfseðils
  • Rakagefandi efni halda raka betur í leggöngunum og þarf öllu jöfnu að nota nokkrum sinnum í viku. Venjuleg rakakrem henta ekki til notkunar á viðkvæma slímhúð legganganna. Rakagefandi efni fást án lyfseðils í apótekum.
  • Forðist að nota sápur og aðrar hreinsivörur á kynfærin sem innihalda ilmefni, sjá nánar um hreinlæti kynfæra kvenna.
  • Hægt er að fá aðstoð við val á sleipiefnum í apótekum.
    Dæmi um sleipiefni: Astroglide, YES og K-Y Jelly.
    Dæmi um rakagefandi efni: Florealis Smaronia og I say.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leggangaþurrkur getur verið þess eðlis að þú þurfir aðstoð frá heilbrigðisstarfsmanni.

Hafðu samband við heilsugæsluna þína ef ráðin heima duga ekki. Ef þú finnur fyrir eftirfarandi einkennum þrátt fyrir notkun sleipiefna eða rakagefandi efna í nokkrar vikur:

  • Kláða
  • Ertingu
  • Sársauka
  • Blæðingu við samfarir

Þú gætir haft gagn af því að prófa lyfseðilsskyld krem, stíla eða hringi sem innihalda estrógen og er komið fyrir í leggöngunum.

Kremin og stílana þarf yfirleitt að nota daglega í tvær vikur til að byrja með og síðan tvisvar í viku eftir það til þess að viðhalda raka í leggöngunum.

Hringurinn virkar hins vegar þannig að hann er settur hátt upp í leggöng þar sem hann er í þrjá mánuði í senn uns þörf er á að skipta honum út fyrir nýjan.

Finna næstu heilsugæslu.