Fimmta veikin (e. slapped cheek syndrome) er veirusýking af völdum parvoveira B19. Um vægan sjúkdóm er að ræða sem gengur venjulega yfir af sjálfu sér. Líkaminn myndar varanlegt ónæmi gegn sjúkdómnum svo fólk fær hann bara einu sinni um ævina.
Fimmta veikin getur reynst þunguðum konum alvarleg vegna áhrifa á rauð blóðkorn fósturs. Nánari umfjöllun um fimmtu veikina hjá þunguðum konum.
Einkenni
Aldur og heilsufar hefur mikið um það að segja hversu alvarleg einkenni eru. Þau geta verið mjög væg og aðeins með útbrotum en oft er mikill slappleiki í nokkra daga áður en útbrot koma fram.
Helstu einkenni eru:
- Hiti - hjá börnum - hjá fullorðnum
- Nefrennsli
- Hálsbólga
- Höfuðverkur
- Roði eða útbrot á annarri kinn eða báðum (fullorðnir fá venjulega ekki útbrot í andlit)
- Liðverkir og stirðleiki einkum hjá fullorðnum sem geta varið í margar vikur
Eftir nokkurra daga slappleika geta útbrot orðið áberandi á andliti, bol og á útlimum. Útbrot geta verið upphleypt og algengt er að kláði fylgi þeim. Útbrot í andliti dofna venjulega innan 2ja vikna en útbrot á bol geta varið lengur eða í allt að fjórar vikur. Hjá fullorðnum geta liðverkir varið mun lengur, jafnvel löngu eftir að önnur einkenni eru horfin.
Smitleiðir
Veiran berst með úðasmiti, þegar smitað fólk hóstar eða hnerrar í umhverfið. Parvoveiran getur líka borist með blóði og þungaðar konur sem fá veiruna í sig geta borið hana yfir í fóstrið. Nánar um fimmtu veikina á meðgöngu.
Tíminn frá því að fólk smitast þar til einkenni koma fram er um 7-14 dagar. Smithætta er nokkrum dögum áður en útbrot koma fram. Talið er að um 20% smitaðra sýni engin einkenni og því erfitt að komast hjá smiti.
Greining
Greining byggist á einkennandi útbrotum í andliti. Greiningu er má staðfesta með blóðprufu.
Meðferð
Engin lyf eru til við sýkingunni sjálfri en meðferð felst í að meðhöndla einkennin og draga úr áhrifum þeirra.
Hér má nefna vökvagjöf, bólgueyðandi lyf, verkja- og hitalækkandi lyf og hvíld.
Hvað get ég gert?
- Hvíld
- Drekka vel
- Nota hitalækkandi lyf eins og parasetamól við höfuðverk, liðverkjum og háum líkamshita. Í sérlyfjaskrá má finna fylgiseðla lyfja
- Nota rakagefandi krem á húð, til að draga úr kláða
- Hægt er að fá mild ofnæmislyf við kláða í lyfjaverslunum án lyfseðils
- Nota bréf til að snýta sér í og henda því strax í ruslið
- Henda rusli með snýtiklútum út hið fyrsta
- Barn getur mætt aftur í leikskóla/skóla þegar það er orðið hitalaust og því líður vel
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leita til heilsugæslunnar ef:
- Einkenni eru alvarleg
Leita til bráðamóttöku barna ef:
- Um öndunarerfiðleika er að ræða
- Gæta vel að reglulegum handþvotti; með volgu vatni og sápu
- Sjúkdómurinn smitast auðveldlega svo það er mikilvægt að skóli/leikskóli viti ef barn er greint með hann
Ekki er til bóluefni gegn fimmtu veikinni.