Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Heilkornavörur minnst 2 á dag

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Heilkorn er mikilvægur hluti af hollu mataræði enda góð uppspretta B-vítamína, E-vítamíns, magnesíums og trefja sem eru nauðsynlegar fyrir heilbrigða meltingu.

Neysla heilkornavara tengist minni líkum á sykursýki af tegund 2, hjarta- og æðasjúkdómum og þyngdaraukningu. Þá tengist neysla á trefjaríkum mat úr jurtaríkinu minni líkum á krabbameini í ristli. Flestir Íslendingar hefðu heilsufarslegan ávinning af því að auka neyslu á fæðu úr jurtaríkinu, s.s. á grænmeti, ávöxtum, berjum, hnetum, baunum, linsum, fræjum og heilkornavörum. Aukin neysla á jurtaafurðum og minni neysla dýraafurða hjálpar einnig til við að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda og vernda þannig umhverfið.  

Embætti landlæknis gefur út opinberar ráðleggingar um mataræði. Með því að fylgja þeim og borða hollan og fjölbreyttan mat, er auðveldara að tryggja að líkaminn fái þau næringarefni sem hann þarf á að halda. Það stuðlar að góðri heilsu og vellíðan. Það þarf ekki að vera flókið að borða hollan mat. Það er gott að byrja á einu skrefi í einu en það að gera litlar breytingar í daglegu lífi getur skipt miklu máli fyrir heilsuna. T.d. að velja heilkornavörur í staðinn fyrir fínunnar kornvörur. 

Þetta gætu verið fyrstu skrefin í átt að hollari kosti

  • Velja brauð eða aðrar matvörur úr heilkorni að minnsta kosti tvisvar á dag.
  • Nota heilkorn í bakstur og grauta, t.d. rúg, bygg, heilhveiti, grófmalað spelt eða hafra.
  • Nota bygg, hýðishrísgrjón og heilkornapasta sem meðlæti í stað fínunninna vara.
  • Velja kornvörur sem eru merktar með Skráargatinu.

Hér getur þú lesið nánar um leiðir til að bæta mataræði þitt.

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína