Gagnsemi bólusetningar er fólgin í þeirri vernd sem hún veitir þeim sem bólusettur er. Gagnsemin er líka fólgin í því að hver og einn bólusettur einstaklingur smitar ekki aðra af þeim sjúkdómi sem hann er verndaður fyrir. Þannig eru bólusetningar einstakar aðgerðir sem eiga sér enga hliðstæðu í forvörnum sjúkdóma.
Til þess að ná þessum árangri þurfa bólusetningar að vera almennar og ná til sem flestra. Íslendingar gættu sín ekki nægilega á þessu í upphafi 19. aldar þegar bólusett var gegn bólusótt. Því kom bólusóttin aftur árið 1839 í síðasta sinn en skaðinn varð minni en áður.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin fullyrðir að engar aðgerðir séu mönnum eins hagkvæmar og bólusetningar.