Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Zika veira

Kaflar
Útgáfudagur

Zika veiran (e. zika virus) er veirusýking sem berst í fólk með moskítóflum. Veiran finnst ekki á Íslandi. Í flestum tilvikum eru veikindi ekki alvarleg en veiran getur verið skaðleg fóstri.

Mikilvægt er að huga vel að forvörnum gegn moskitóbitum.

Nánar

Nánari upplýsingar á vef Embættis landlæknis:  Zika veira - leiðbeiningar til ferðamanna

Einkenni

Flestir sem sýkjast fá lítil eða væg einkenni. Einkenni ganga yfirleitt yfir á tveimur til sjö dögum.

Helstu einkenni:

Smitleiðir

Helstu smitleiðir Zika veiru eru:

  • Með biti moskítóflugna, sem er algengasta smitleiðin
  • Frá móður til fósturs
  • Með kynmökum og blóðgjöf 

Zika veiruna má finna á eftirfarandi stöðum í heiminum:

  • Suður og mið Ameríku
  • Karabíska hafinu
  • Eyjum Kyrrahafsins
  • Afríku
  • Asíu

Greining

Hægt er að greina Zika veiruna með blóðprufu eða þvagprufu.

Meðferð

Engin lyf eru til við sýkingunni sjálfri en meðferð felst í að meðhöndla einkennin og draga úr áhrifum þeirra.

Hér má nefna vökvagjöf, bólgueyðandi lyf, verkja- og hitalækkandi lyf og hvíld. 

Hvað get ég gert?

  • Drekka vel af vökva
  • Taka inn bólgueyðandi lyf, verkja- og hitalækkandi lyf
  • Hvíld

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leita til heilsugæslu ef: 

  • Einkenni eru svæsin
  • Þú eða maki þinn verður barnshafandi innan þriggja mánaða eftir dvöl á svæðum þar sem smit er mögulegt
  • Dofi, náladoða, vöðvaverkjum eða verkir í fótleggjum eða handleggjum sem leiða út í fætur og hendur
Forvarnir

Þar sem ekkert bóluefni er til við Zika veiru þarf að gæta varúðar og forðast moskitóbit.

Mælt er með notkun skordýravarna. Klæðast síðum, víðum fatnaði sem hylur húð og nota flugnanet á hættusvæðum.

Mikilvægt er að huga að forvörnum allan sólarhringinn en sérstaklega við ljósaskipti, á morgnanna og kvöldin.

Barnshafandi

Zika veiran getur skaðað fóstur í móðurkviði ef þunguð móðir sýkist af veirunni. Veiran getur haft áhrif á þroska heila fóstursins og valdið því að heilinn verður minni en eðlilegt getur talist (e. microcephaly).

Þar sem veiran getur verið einkennalaus er mikilvægt að reyna að forðast þungun í allt að þrjá mánuði eftir að komið er frá svæðum þar sem veiruna er að finna.