Ökklatognun

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Tognun á ökkla verður oftast þegar fólk misstígur sig eða mikill snúningur kemur á liðinn. Við ökklann liggja liðbönd og er hlutverk þeirra að halda liðnum stöðugum. Við tognun teygist þannig á liðböndunum að þau lengjast en lengingin gengur stundum til baka á lengri eða skemmri tíma. Þessi áverki getur valdið verk og bólgu, ökklinn getur verið óstöðugur og erfitt getur verið að setja fulla þyngd á fótinn.

Einkenni

  • Eymsli 
  • Verkur 
  • Bólga og mar við ökklann 
  • Sumum finnst erfitt að hreyfa ökklann eða setja fullan þunga á fótinn

Greining

Yfirleitt dugar lýsing á óhappinu og skoðun hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi til að greina hvort um ökklatognun sé að ræða. Framkvæmd er röntgenrannsókn ef taldar eru líkur á beináverka.  

Hvað get ég gert?

Fyrsta sólarhringinn eftir tognun er mikilvægt að takmarka frekari skaða.  

Kæling
Fyrst eftir áverka og allt upp í einn sólarhring er gott að kæla áverkasvæðið á  1-2 tíma fresti í 15 mínútur í senn. Hægt er að nota kælipoka eða poka með frosnum matvælum. Hafið ávallt eitthvað á milli kælipokans og húðarinnar, til dæmis viskustykki eða tusku.  

Lyfting 
Með því að hækka undir fæti dregur það úr bólgu á áverkasvæði. Ef legið er út af er gott að setja púða eða teppi undir fótinn, en setja fótinn upp á stól ef setið er.  

Hvíld  
Mikilvægt er að hvíla ökklann til að draga úr álagi á áverkasvæðinu.

Þrýstingsumbúðir
Umbúðir geta dregið úr bólgumyndun og stutt við ökklann. Algengustu umbúðir eru teygjusokkur eða teygjubindi og eiga að vera frá tám og upp á miðjan kálfa. Umbúðir eru yfirleitt hafðar í 3-7 daga meðan mesta bólgan er að hjaðna. Taka á teygjusokk af ökkla áður en farið er að sofa. 

Eftirfylgd

Eftir um tvær vikur geta flestir gengið eðlilega, en liðböndin gróa á 5-6 vikum. Verkir geta þó varað í nokkrar vikur eftir áverka, en fara minnkandi.   

  • Hlífðu ökklanum við miklu álagi, svo sem íþróttaiðkun á þessu tímabili.  
  • Styrktaræfingar að sársaukamörkum draga úr líkum á endurtekinni tognun.
  • Við íþróttaiðkun er æskilegt að nota ökklasokk eða teip í allt að 12 vikur eftir áverkann. 

Við verkjum er hægt að taka væg verkjalyf s.s. parasetamól eða íbúprófen.  

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leitaðu til næstu heilsugæslu: Ef þú átt erfitt með að stíga í fótinn eða ökklinn gefur eftir þegar gengið er.  

Leitaðu strax til næstu bráðamóttöku: Ef fótleggurinn er afmyndaður eða skakkur.  

Finna næstu bráðamóttöku eða heilsugæslustöð.

Var þetta efni hjálplegt?
Markmið vefsins er að veita upplýsingar um öll mál er varða heilsu. Allar ábendingar til að bæta vefinn eru vel þegnar.