Munnþurrkur stafar meðal annars af of lítilli munnvatnsframleiðslu og getur komið fram við ákveðna sjúkdóma eða sem aukaverkun lyfja. Munnþurrkur eykur hættuna á tannskemmdum. Þurr munnur getur líka hamlað fólki að tala, tyggja matinn og kyngja honum. Bragðskynið getur líka breyst.
Orsakir
- Ofþornun
- Öndun í gegnum munn á nóttunni, til dæmis vegna nefstíflu
- Kvíði
- Krabbameinsmeðferð (Geisla- eða lyfjameðferð)
- Munnþruska
- Aukaverkanir lyfja
Lyf sem geta valdið munnþurrki
Algengustu lyfin eru:
- Geð- og þunglyndislyf
- Meltingarfæralyf
- Lyf við tíðum þvaglátum
- Lyf við Parkinsons-sjúkdómi
- Ofnæmislyf
- Flogaveikilyf
Lyf sem geta valdið munnþurrki eru meðal annars notuð til að:
- Draga úr kvíða
- Draga úr ógleði
- Draga úr sársauka, líkt og ópíóíðar
- Draga úr svefnleysi
- Draga úr löngun til að reykja. Notuð við reykleysismeðferð
- Meðhöndla alvarlega geðsjúkdóma (geðrofslyf)
- Minnka bjúg (þvagræsilyf)
- Minnka magasýru (sýrubindandi lyf)
- Minnka nefstífluVíkka út berkjur (berkjuvíkkandi lyf)
Eldra fólk er í meiri hættu en yngra fólk á að fá munnþurrk þar sem það er oft að taka mörg lyf.
Hvað get ég gert?
- Drekka vel af vatni
- Sjúga ísmola
- Forðast áfengi og koffín
- Nota varasalva ef varir eru einnig þurrar
Lyf gegn munnþurrki fást án lyfseðils í apótekum:
- Sykurlausar sogtöflur, sykurlausir molar og tyggigúmmí með sætuefnum sem skaða ekki tennur og örva starfsemi munnvatnskirtlanna.
- Munnúði (lausn sem getur að minnsta kosti að einhverju leyti komið í stað
munnvatns). - Sérstök tannkrem, munnsprey og gel vinna gegn munnþurrki og vernda slímhúð í
munni. Munnspreyið er notað eftir þörfum yfir daginn, en gelið hefur áhrif í 6-8 tíma og er notað fyrir máltíðir eða yfir nótt.
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leita til heilsugæslu ef:
- Munnþurrkur hefur áhrif á tal
- Erfiðlega gengur að borða
- Sár eða bólga er í munni
- Grunur er um að lyfjainntaka hafi áhrif á munnþurrk
- Munnþurrkur er til staðar þrátt fyrir einkennameðferð