Bakflæði (e. reflux) er það kallað þegar magainnihald rennur til baka upp í vélinda. Þetta er vel þekkt ástand, sem veldur óþægindum en er sjaldnast hættulegt. Helstu einkenni bakflæðis eru uppþemba og brjóstsviði eftir máltíðir. Við langvarandi bakflæði er hætta á skemmdum á slímhúð vélinda og því ástæða til að ráðfæra sig við lækni þegar áhyggjur vakna.
Einkenni
Það eru ýmis einkenni sem fylgja bakflæði. Þau helstu eru:
- Brjóstsviði
- Uppþemba
- Hæsi
- Nábítur
- Hóstakjöltur
- Kyngingarörðugleikar
Einkenni geta versnað:
- Eftir máltíðir
- Við það að leggjast niður eða beygja sig
Orsakir
Á milli vélinda og maga er sterkur hringvöðvi sem kemur í veg fyrir að magainnihald renni til baka úr maga og upp í vélinda. Þegar þessi vöðvi starfar ekki eðlilega er talað um bakflæði eða vélindabakflæði. Það er ýmislegt sem getur orsakað það að vöðvinn starfi ekki eðlilega t.d. ofþyngd, þindarslit og meðganga. Þá eru nokkrar fæðutegundir sem auka sýrumyndun í maga en það er einkum sterkur, brasaður og feitur matur. Kaffi, áfengi, nikótín og súkkulaði veikir hringvöðvann og eykur hættu á bakflæði.
Slímhúð vélindans þolir illa súrt magainnihald og því er hætt við bólgu og jafnvel blæðandi sárum ef ekkert er að gert. Kyngingarörðugleikar geta verið vísbending um að örvefur hafi myndast sem þrengir vélindað.
Greining
Ef grunur er um bakflæði er sjúkdómssaga skoðuð. Oft eru teknar röntgenmyndir og jafnvel gerð speglun. Þá eru einnig algengt að gerðar séu þrýstings- og sýrumælingar í vélinda til að skoða hvort og hversu mikil áhrif séu af bakflæðinu.
Hvað get ég gert?
Það er ýmislegt sem einstaklingur getur gert til að fyrirbyggja bakflæði:
- Borða hæfilega mikið í einu (forðast ofát)
- Draga úr kaffi-, súkkulaði- og mjólkurneyslu
- Forðast að neyta fastrar fæðu 3-4 klst fyrir svefn
- Forðast sterka, brasaða og feita fæðu
- Forðast áfengi og tóbak
- Forðast súra ávexti og ávaxtasafa
- Forðast þröng föt
- Sitja vel uppi við og eftir máltíðir
- Stefna að og halda kjörþyngd
- Hækka höfðalag fyrir svefn
Hvenær skal leita aðstoðar?
Ef þér tekst ekki að ná tökum á bakflæðinu með almennum ráðum er rétt að leita til heilsugæslunnar.
Læknir ráðleggur stundum lyf sem draga úr bakflæði. Sum eru lyfseðilsskyld, önnur fást án lyfseðils. Annars vegar eru það lyf er flýta magatæmingu niður í skeifugörn og hins vegar lyf sem draga úr sýrumyndun magainnihalds.
Þú getur haft samband við heilsugæsluna ef þig vantar stuðning til að efla heilsu, auka lífsgæði eða eða þig vantar hjálp til að ná betri stjórn á aðstæðum þínum.
Finna næstu heilsugæslu hér.