Daglegar lífsvenjur barna hafa áhrif á heilsu þeirra. Með þessu sjálfsmati geta foreldrar kannað hversu heilsusamlegar lífsvenjur barna þeirra eru og fengið fræðslu í takt við niðurstöður matsins. Matið er sérstaklega miðað við börn í fyrstu bekkjum grunnskóla. Þetta er ekki læknisfræðilegt mat og hafi foreldrar áhyggjur af heilsu barns síns er bent á að hafa samband við heilsugæslustöð í nærumhverfi.
Ráðleggingar og viðmið eru samkvæmt almennum ráðleggingum og eiga því ekki alltaf við ef barn á við langvinnan sjúkdóm eða heilsuvanda að etja.