Glerungseyðing
Glerungseyðing verður þegar sýra leysir upp glerung tanna og hann þynnist og eyðist. Þó glerungurinn sé harðasta efni líkamans er hann berskjaldaður þegar hann er látinn liggja í sýrubaði.
Orsökum glerungseyðingar má skipta í tvennt:
- Ytri þættir: Mataræði og lífsstíll
- Innri þættir: Bakflæði og uppköst
Glerungur sem hefur eyðst myndast ekki aftur. Tennurnar verða viðkvæmar fyrir kulda og meiri hætta er á tannskemmdum.
Súrir drykkir
Sýrustig er mælt með svokölluðu pH gildi. Ef pH gildi drykkjar er lægra en 5,5 er talað um súran drykk. Eftir því sem pH gildið er lægra þeim mun súrari er drykkurinn. Hlutlaust pH gildi er 7. Hvort drykkurinn er sykurlaus eða ekki skiptir ekki máli í þessu samhengi.
|
Drykkir |
Sýrustig (pH) |
|---|---|
|
Gosdrykkir |
2,3 - 3,0 |
|
2,6 - 3,6 |
|
|
Íþróttadrykkir |
2,7 - 3,1 |
|
Ávaxtasafar |
2,0 - 4,0 |
|
Vatn úr krana |
6,5 - 9,0 |
Drykkir
:Gosdrykkir
Sýrustig (pH)
:2,3 - 3,0
Drykkir
:Sýrustig (pH)
:2,6 - 3,6
Drykkir
:Íþróttadrykkir
Sýrustig (pH)
:2,7 - 3,1
Drykkir
:Ávaxtasafar
Sýrustig (pH)
:2,0 - 4,0
Drykkir
:Vatn úr krana
Sýrustig (pH)
:6,5 - 9,0
Viltu velja hollari kostinn?
Á heilsuveru má fá upplýsingar um viðbættan sykur, koffínmagn, saltmagn, sætuefni og mettaða fitu í ýmsum vörum og bera þær sama. Smelltu hér að neðan til að skoða hollara val.
Hvernig koma má í veg fyrir glerungseyðingu
Sterk tengsl eru á milli glerungseyðingar og neyslu súrra drykkja. Munnvatnið verndar tennurnar en verndunarmáttur þess verður lítill ef „súr“ drykkur fær að „baða“ tennurnar með jöfnu millibili.
Góð tannhirða og reglubundið eftirlit er mikilvægt til að viðhalda heilbrigðum tönnum.
Í myndbandinu hér að neðan er skýrt hvernig sýran eyðir glerungnum.
Neysluvenjur sem stuðla að góðri tannheilsu eru þær sömu og almennt stuðla að góðri heilsu og ráðleggingar um mataræði segja til um. Hér er myndband sem skýrir af hverju neysluvenjur eru svona mikilvægar tannheilsu.
