Geðorðin 10

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Geðorðin 10 byggja á gagnreyndum aðferðum til að efla góða geðheilsu og auka vellíðan. Allt eru þetta atriði sem hver og einn getur tileinkað sér og æft sig í ævina á enda. Geðrækt er mikilvægur hluti heilsuræktar enda er engin heilsa án geðheilsu.

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína

Hugsaðu jákvætt, það er léttara
  • Jákvæð sýn á lífið er undirstaða vellíðanar
  • Þó hugsanir geti verið neikvæðar þarf ekki öll tilveran að vera það
  • Hægt er að hafa áhrif á líðan með hugarfarinu
Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
  • Ein mikilvægasta uppspretta hamingjunnar eru góð samskipti við aðra
  • Að hlúa að því sem okkur þykir vænt um snýst jafnt um ánægju og tilgang í lífinu
  • Það er gott að finna að einhver þarf á umhyggju manns að halda
Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
  • Það eykur víðsýni og umburðarlyndi að geta tamið sér nýjungar
  • Löngun til að læra meira í dag en í gær stuðlar að persónulegum þroska
  • Með opnum huga verður auðveldara að sjá lausnir á vandamálum
Lærðu af mistökum þínum
  • Enginn er fullkominn og öllum verða einhvern tíma á mistök
  • Oft er það mikilvægt skref í átt að velgengni að læra af eigin mistökum
  • Eitt af því sem greinir þá sem eru hamingjusamir frá þeim sem eru óhamingjusamir er viðhorf þeirra til eigin mistaka og mótlætis í lífinu
Hreyfðu þig daglega, það léttir lund
  • Regluleg hreyfing er nauðsynleg fyrir geðheilsuna frá vöggu til grafar
  • Hreyfing dregur úr þunglyndi og kvíða og bætir andlega líðan
  • Regluleg hreyfing stuðlar að hamingjusömum efri árum
Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
  • Mikilvægt er að þekkja hvaða flækjur valda streitu og vanlíðan og forðast þær
  • Áhyggjur yfir því ókomna hjálpa ekki nema síður sé
  • Gott er að þjálfa sig í því að útiloka neikvæð áhrif frá umhverfinu
Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
  • Farsælt er að reyna að skilja af hverju fólk hagar sér eins og það gerir
  • Hlustum vel á aðra og grípum ekki fram í
  • Hrós og hvatning hafa góð áhrif á samskipti
Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
  • Góðir hlutir gerast hægt
  • Það er mikilvægt að gefast ekki upp þó á móti blási
  • Velgengni í lífinu næst með því að taka á mótlætinu og leyfa því að þroska sig
Finndu og ræktaðu hæfileika þína
  • Allir búa yfir einhverjum hæfileikum
  • Hver og einn þarf að finna og meta sína hæfileika og leyfa þeim að njóta sín
  • Eitt af lykilatriðum hamingjunnar er að hafa gaman af viðfangsefnum hversdagsins
Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast
  • Þeir ná lengra sem setja sér markmið
  • Markmið mega vera stór eða smá og ná til lengri eða skemmri tíma
  • Það er aldrei of seint að láta drauma sína rætast – en það gerist ekki nema unnið sé að því
Var þetta efni hjálplegt?
Markmið vefsins er að veita upplýsingar um öll mál er varða heilsu. Allar ábendingar til að bæta vefinn eru vel þegnar.