Eftir samfarir þar sem ekki var notuð getnaðarvörn er alltaf hætta á þungun. Minnka má líkurnar á þungun með því að taka neyðargetnaðarvörn sem inniheldur hormón. Neyðargetnaðarvörn fæst í apótekum án lyfseðils.
Nokkrar staðreyndir
Neyðargetnaðarvörn:
- Er notuð ef kynmök voru án getnaðarvarna eða getnaðarvörn brást.
- Þarf að taka sem fyrst eftir óvarin kynmök eða innan 72 klst (3 dagar). Því fyrr því betra.
- Er hægt að fá í næsta apóteki án lyfseðils.
- Veitir enga vörn gegn kynsjúkdómum.
- Á aðeins að nota í neyðartilfellum og kemur ekki í staðin fyrir notkun öruggra getnaðarvarna
Brjóstagjöf
Virkt innihaldsefni lyfsins skilst út í brjóstamjólk. Því skal taka töfluna strax eftir brjóstagjöf og forðast brjóstagjöf í a.m.k. 8 klst. eftir töku lyfsins. Tæma skal heldur brjóstin með brjóstapumpu í 8 klst. eftir töku töflunnar.
Aukaverkanir
Algengt er að konur finni fyrir aukaverkunum við töku töflunnar. Helstu aukaverkanir eru:
- Ógleði
- Óreglulegar blæðingar fram a næstu blæðingum
- Verkir í neðra kviðarholi
- Þreyta
- Höfuðverkur
- Svimi
- Eymsl í brjóstum
Ef kastað er upp innan 3ja klukkustunda eftir að taflan er tekin þarf að taka aðra töflu eins fljótt og hægt er.
Fylgiseðil má finna hjá Sérlyfjaskrá.
Heilsubrú HH býður konum reglulega upp á ráðgjöf um getnaðarvarnir.