Hreinlæti er mikilvægt þegar kemur að kynfærum eins og öðrum stöðum líkamans.
- Þvo liminn daglega með vatni.
- Bretta forhúðina upp og þvo varlega undir henni. Þar eiga til að safnast óhreinindi sem verða gróðrarstía fyrir bakteríur sem geta lyktað illa og valdið roða, bólgum og óþægindum.
- Ekki nota ilmefni, talkum eða annað slíkt á liminn. Það er óþarfi og getur valdið óþægindum.
- Muna eftir að þvo punginn og svæðið á milli pungs og endaþarms. Ef þú notar sápu á þetta svæði hafðu hana þá milda, án lyktarefna og notaðu hana í hófi. Sterk sápa getur aukið líkur á sveppasýkingu á kynfærum.
- Nota tækifærið og læra að þekkja hvernig eistun þín eru í laginu. Fylgjast vel með þeim reglulega með sjálfskoðun á eistum.