Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Hitaslag

Kaflar
Útgáfudagur

Hitaslag er þegar hár lofthiti eða sterk sól veldur því að líkamshitinn hækkar. Í miklum hita á líkaminn erfitt með að kæla sig niður með svita.

Einkenni

Alvarlegri einkenni

  • Húðin er heit, rauð en ekki sveitt
  • Krampi
  • Skert meðvitund
  • Skortur á samhæfingu

Einkenni hitaslags eru oft þau sömu bæði í börnum og fullorðnum en börn geta einnig orðið örg. 

Hvað get ég gert?

  • Fara á svalan stað
  • Fjarlægja allan óþarfa fatnað eins og jakka eða sokka
  • Drekka kalt vatn eða íþróttadrykki
  • Kæla húðina. Til dæmis með því að bleyta með köldu vatni og/eða vera við viftu. Einnig er hægt að setja kalda bakstra aftan á háls eða í handarkrika

Hvenær skal leita aðstoðar?

Leitaðu á næstu heilsugæslu ef:

  • Einkenni fara ekki á 30 mínútum 
  • Vanlíðan sökum einkenna

Leitaðu á næstu bráðamóttöku ef:

  • Ef eitt af alvarlegri einkennunum koma fram
  • Einkenni minnka ekki á 30 mínútum þrátt fyrir meðferð

Finna næstu heilsugæslu eða bráðamóttöku hér.

Forvarnir
  • Drekka kalda drykki, sérstaklega við hreyfingu
  • Nota sólkrem
  • Klæðast ljósum, víðum fatnaði og vera með hatt
  • Vera í skugga yfir heitasta tíma dags
  • Forðast koffín, heita og áfenga drykki
  • Draga úr líkamlegu erfiði
  • Fara í kalda sturtu eða bleyta húð og föt með köldu vatni
  • Vera innandyra, draga fyrir gluggatjöld, loka gluggum og kveikja á viftu
  • Börn, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma eru líklegri til að fá hitaslag

Hreyfing sem og dvöl í heitu loftslagi eykur líkur á hitaslagi.