Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Sólkrem

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Hægt er að smyrja sólkremi á húð sem er óvarin í sólinni en sólkrem er ekki nein töfralausn og þau þarf að nota rétt. Notið aldrei sólkrem sem aðalsólvörn til að geta verið lengur úti í sólinni. Sólkremið ver okkur ekki fyrir vissum hættulegum geislum sólarinnar þó það komi í veg fyrir sólbruna.

  • Þegar sólkrem er keypt, athugið að það innihaldi bæði vörn við UVA og UVB geislum.
  • Varnarstuðlarnir á sólkremum eru ekki eins allsstaðar í heiminum. Hér á landi notum við Evrópustuðul. Í Bandaríkjunum er ekki samræmdur stuðull og mikill munur getur verið á sólkremum þar í landi þó stuðullinn sé sá sami. Best er því að kaupa sólkremin heima áður en haldið er í ferðalag.
  • Sólkrem fyrir börn ætti alltaf að vera að minnsta kosti með varnarstuðul 30. Hér má lesa meira um börnin og sólina.
  • Lesið innihaldsefnin á sólkreminu. Kaupið ekki sólkrem sem inniheldur ilmefni eða paraben, sérstaklega ekki fyrir börn. Þessi efni heita til dæmis metýl-, etýl-, própýl-, bútýl-, ísóprópýl- og ísóbútýlparaben. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að paraben raska hormónastarfsemi og að áhrifin aukast með stærð sameindarinnar. Í Evrópu er leyfilegur heildarstyrkur parabena í snyrtivörum háður takmörkunum. Svansvottaðar snyrtivörur innihalda ekki paraben.
  • Þegar sólkrem er notað þarf að bera það á hálftíma áður en farið er í sólina og endurtaka rétt áður en farið er út. Eftir það skal endurnýja sólvörnina á tveggja tíma fresti.
  • Sólkrem sem þolir vatn þurrkast af með handklæði sé það notað til að þurrka húðina eftir veru í vatni, sundlaug eða sjóbaði.
  • Algengt er að fólk noti allt of lítið af sólkremi. Það þarf um 3-4 matskeiðar af sólkremi til að verja meðalmanneskju með sólkremi.
  • Þegar sólkrem er borið á eru ákveðnir staðir sem vilja verða útundan. Þetta eru til dæmis: tær, ristar, kálfar, innan á lærum, miðja baksins, axlir, eyru, miðsnesi og skiptingin í hárinu sé hún til staðar.