Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Kynlífsfíkn

Kaflar
Útgáfudagur

Kynlíf er manninnum eðlilegt. Kynhvötin er sterk hjá mörgum enda er hún leið náttúrunnar til að fjölga tegundinni. Kynlífsfíkn er kynferðisleg hegðun sem viðkomandi hefur misst tökin gagnvart. Þetta getur verið kynlíf með maka eða öðru fólki, kaup á vændi, neysla á klámi, sjálfsfróun eða kaup á kynlífsþjónustu á netinu eða í síma. Allt er þetta hegðun sem veldur flestu fólki ekki vanda en sá sem er haldinn fíkn getur ekki stoppað og hann þarf alltaf meira og meira til að fullnægja fíkninni þannig að vandi hlýst af. Jafnvel þó viðkomandi vita að fíkn hans og hegðun getur skaðað samband hans við maka sinn getur hann ekki haft hemil á fíkninni. Það er því ekki hegðunin sem slík sem er vandamálið heldur fíknin í hana, hversu oft hún er stunduð og neikvæðar tilfinningar og afleiðingar sem henni fylgja.

Kynlífsfíkn er eins og aðrir fíknisjúkdómar að því leiti að það er hægt að fá hjálp. Ef þú hefur áhyggjur eða telur að þú sért mögulega haldin/n kynlífsfíkn ættir þú að leita aðstoðar hjá sálfræðingi eða geðlækni.

Kynlífsfíkn veldur oft miklum sársauka í parasamböndum fyrir báða aðila. Hafir þú áhyggjur af að maki þinn sé haldinn kynlífsfíkn ættir þú að ræða það við hann. Fyrsta skrefið er að viðurkenna að vandi er til staðar og það eru ekki allir tilbúnir til þess í byrjun. Það getur líka verið að vandi ykkar sé af öðrum toga. Ef þið eruð sammála um að leita ykkur hjálpar ættuð þið að gera það. Ef maki þinn er ekki tilbúinn til þess getur þú samt sem áður leitað aðstoðar fyrir þig. Þú getur rætt málið við heimilislækninn þinn og fengið ráðleggingar eða leitað til sálfræðings eða geðlæknis. 

Finna næstu heilsugæslustöð.