Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Flogaveiki

Kaflar
Útgáfudagur

Flogaveiki er skilgreint sem aukin tilhneiging til að fá flog. Flogaveiki er taugasröskun sem orsakast af breytingum á rafboðum í heila sem einkennist af endurteknum flogum.

Einkenni geta verið mismunandi, allt frá stuttum störum yfir í flog með vöðvakippum og skerðingu á meðvitund. 

Einkenni

Einkenni geta komið mismunandi fram eftir því hvaða svæði heilans á í hlut. Dæmi um einkenni:

  • Andleg einkenni eins og hræðsluköst
  • Froðumyndun í munni
  • Máttleysi (falla í jörðina)
  • Meðvitundarskerðing
  • Sumir halda meðvitund á meðan aðrir missa meðvitund
  • Missa skynjun á umhverfi
  • Missa þvag
  • Skyntrulanir til dæmis truflun á sjón, heyrn, bragði eða lykt
  • Stífleiki
  • Óviðráðanlegir vöðvasamdrættir eða skjálfti
  • Undarleg tilfinning og óróleiki í kvið, náladofi í útlimum eða breyting á lykt eða bragði

Orsök

Oftast er orsök óþekkt en getur verið tengd erfðum. Einnig getur flogaveiki komið í kjölfarið á:

  • Alvarlegum höfuðáverka
  • Heilablóðfalli
  • Heilaæxli
  • Misnotkun á fíkniefnum eða áfengi
  • Sýkingu í heila
  • Súrefnisskorti í fæðingu

Greining

  • Sjúkrasaga
  • Heilalínurit

Margar orsakir geta verið fyrir flogum og því geta aðrar rannsóknir verið gerðar, til dæmis:

  • Tölvusneiðmynd
  • Segulómun

Flogaveiki greinist oftast hjá börnum eða hjá fólki yfir 60 ára en getur komið fram á hvaða aldri sem er. 

Meðferð

  • Helsta meðferðin er lyfjameðferð
  • Sumir þurfa lyfjameðferð alla ævi meðan aðrir hætta að fá flog með tímanum. 
  • Önnur meðferð getur verið skurðaðgerð.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Hringja skal í 112 ef:

  • Þetta er fyrsta flog 
  • Einstaklingur fær flog í vatni 
  • Einstaklingur hefur meitt sig
  • Endurtekin flog 
  • Flog varir í 5 mínútur eða lengur
  • Áhyggjur eru af einstaklingi

Leita skal til læknis ef einstaklingur fær flog þrátt fyrir lyfjameðferð.

Finna næstu heilsugæslu eða bráðamóttöku hér