Chikungunya (e. chikungunya) er veirusýking sem getur borist í fólk með biti sýktra moskitófluga. Aðaleinkenni sýkingarinnar eru hiti og liðverkir og oftast nær fólk sér á vikutíma. Flugurnar bíta aðallega á daginn, frá sólarupprás og til sólseturs.
Einkenni sýkingar koma oftast í ljós 4-8 dögum eftir smit. Veiran er ekki landlæg á Íslandi.
Mikilvægt er að huga vel að forvörnum gegn moskitóbitum.
Einkenni
Helstu einkenni eru:
- Liðverkir
- Hár hiti - hjá börnum - hjá fullorðnum
Önnur þekkt einkenni eru:
- Höfuðverkur
- Vöðvaverkir
- Liðbólgur
- Útbrot
- Ógleði
- Þreyta
Einkenni sýkingar koma oftast fram 2-12 dögum eftir moskitóbit. Háum hita fylgja oft miklir liðverkir. Liðverkirnir standa vanalega yfir í nokkra daga en í geta varað í nokkrar vikur eða jafnvel mánuði eða ár.
Smitleiðir
Chikungunya sýking berst í fólk með sýktum moskitóflugum. Sýkingin berst ekki manna á milli en ef moskitóflugur bíta fólk sem er þegar sýkt geta þær borið veiruna yfir í annað fólk. Því er mikilvægt að forðast ný moskitóbit til að koma í veg fyrir að veirusýkingin dreifist.
Smit koma upp reglulega og má nefna mörg lönd í :
- Afríku
- Asíu
- Suður- Ameríku
- Eyjum í Indlands- og Kyrrahafi
- Þá hafa einnig komið upp tilfelli á Ítalíu og í Frakklandi
Greining
Blóðprufa fyrir mótefnamælingu og erfðaefni veirunnar
Meðferð
Engin lyf eru til við sýkingunni sjálfri en meðferð felst í að meðhöndla einkennin og draga úr áhrifum þeirra.
Hér má nefna vökvagjöf, bólgueyðandi lyf, verkja- og hitalækkandi lyf og hvíld.
Hvað get ég gert?
- Drekka vel af vökva
- Taka inn bólgueyðandi lyf, verkja- og hitalækkandi lyf
- Hvíld
Hvenær skal leita aðstoðar?
Leita til heilsugæslu ef:
- Ef einkenni eru svæsin
Besta vörnin gegn sýkingu er að gæta varúðar og forðast moskitóbit.
Mælt er með notkun skordýravarna, viðeigandi fatnaði og flugnaneti fyrir þá sem eru í hættu.
Mikilvægt er að huga að forvörnum allan sólarhringinn en veirur sem bera Chikungunya sýkinguna bíta yfir hábjartan daginn.
Bóluefni:
Til er bóluefni gegn veirunni en ekki hér á landi.