Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Neyðaráætlun

Kaflar
Útgáfudagur

Neyðaráætlun er plan sem þú gerir til þess að tryggja öryggi þitt og barna þinna. Áætlunin inniheldur upplýsingar sem eiga sérstaklega við þig. 

  • Ímyndaðu þér hvað þú getur gert til að tryggja öryggi þitt og barna þinna. 
  • Mundu eða skrifaðu hjá þér hvert þú getur leitað eða hringt þegar öryggi þínu og/eða barna þinna er ógnað. Neyðarlínan - 112, hjálparsími Rauðakrossins  - 1717, upplýsingamiðstöð Heilsugæslunnar - 1700, einhver sem þú treystir, önnur númer. 
  • Kenndu börnunum þínum að hringja í 112 í neyðartilvikum. Segðu þeim að þau þurfi alltaf að gefa upp fullt nafn og heimilisfang. Segðu þeim að sá sem svarar muni spyrja þau og þau þurfi að svara því sem þau eru spurð um. Burt séð frá ofbeldi á heimilinu er gott fyrir öll börn að kunna að hringja í neyðarlínuna.
  • Áttu nágranna sem þú treystir og gætir fengið að fara inn hjá í neyðartilvikum? Ef svo er segðu þeim hvað er í gangi. Biddu nágrannana um að hringja í Neyðarlínuna 112 ef þeir heyra eða verða varir við ofbeldi eða hávaða sem gæti gefið til kynna ofbeldi. 
  • Gerðu flóttaáætlun af heimilinu og æfðu hana svo þú getir komist út úr hættulegum aðstæðum ásamt börnum þínum.
  • Ímyndaðu þér útgönguleiðir úr mismunandi herbergjum heimilisins. 
  • Pakkaðu niður helstu nauðsynjum fyrir þig og börnin í neyðartösku sem þú geymir örugga til dæmis hjá traustum vini eða nágranna. Tillögur að því sem gæti verið í töskunni má finna hér neðar á síðunni undir „Hvað þarf að taka með að heiman?“
  • Hafðu á þér smá upphæð í peningum. Það getur komið sér vel til dæmis ef taka þarf leigubíl eða kaupa eitthvað sem vantar. Slóð peninganna verður ekki rakin en kortaslóðir er auðvelt að rekja.
  • Hafðu símann alltaf með þér. Hafir þú áhyggjur af að maki þinn reki ferðir þínar í gegnum símann gætir þú verið með frelsiskort og gamlan síma til að nota í neyðartilvikum.
  • Láttu vini eða fjölskyldu vita ef þú óttast um öryggi þitt eða ef þú ert hjálparþurfi. Til dæmis er hægt er að semja um neyðarorð sem þú getur notað ef þú vilt láta sækja þig.
  • Reyndu að átta þig á hvenær meiri líkur eru á að ofbeldið eigi sér stað og komdu þér í skjól þar sem þú kemst auðveldlega út af heimilinu. 
  • Það getur verið hjálplegt að vera með öryggisorð fyrir aðila sem þú treystir eða börnin þín svo hægt sé að átta sig á því að ofbeldið er líklega að fara að eiga sér stað. 
  • Forðastu eldhús og bílskúr þar sem hnífa og verkfæri er að finna. Einnig ættir þú að forðast staði þar sem engin undankomuleið er eins og oftast er á baðherbergjum.
  • Það eiga allir rétt á að lifa ofbeldislausu lífi – einnig þú!

Næstu skref

Að undirbúa brottför af heimilinu

Sama hvaða leiðir sem þú hefur notað til að takast á við ofbeldið getur komið að því að þér finnst eina leiðin vera að fara af heimilinu og ef til vill slíta sambandinu.

Að taka ákvörðun um að fara að heiman merkir ekki að þú þurfir að gera það strax. Taktu þann tíma sem þarf til að undirbúa þig vel. Að hugleiða sambandsslit og taka ákvörðun þar um getur orðið langt ferli.

Stundum versnar ofbeldið ef gerandinn telur að þolandinn ætli að ljúka sambandinu. Þetta getur því orðið hættulegur tími fyrir þig. Það er mikilvægt að muna að það að slíta sambandinu mun ekki endilega stöðva ofbeldið.

Hugaðu að fjármálunum. Ef til vill getur þú lagt fyrir svolitla upphæð í hverri viku. Þú þarft ef til vill að stofan nýjan reikning í bankanum sem aðeins þú hefur aðgang að.

Ákveddu stund þar sem þú veist að maki þinn verður ekki heima. Reyndu að taka allt með þér sem þú þarfnast, þar með talin mikilvæg persónuleg skjöl og gögn varðandi þig og börnin. Það er ekki víst að þú getir komið aftur til að sækja þessa hluti.

Taktu börnin með þér. Það gæti orðið erfitt að fá þau til þín síðar ef þú ferð án þeirra. Ef þau eru í leikskóla eða skóla gerðu þá ráðstafanir þannig að allir kennarar þeirra viti hver staðan er. Láttu vita hverjir muni sækja börnin í skólann.

Mundu að víða er hjálp að fá. Sjá lista hér.

Hvað þarf að taka með að heiman?

Það er ýmislegt sem þú þarft að taka með þér. Sumt getur þú borið á þér en öðrum hlutum gætir þú komið fyrir í neyðartöskunni.

  • Persónuskilríki fyrir þig og börnin, vegabréf og ökuskírteini.
  • Ef einhver notar lyf að staðaldri þarf að hafa þau meðferðis.
  • Föt og snyrtivörur fyrir þig og börnin.
  • Skjöl sem varða húsaleigu og bílinn ef um það er að ræða.
  • Myndir, persónulega muni, dagbók, skartgripi og annað sem hefur tilfinningalegt gildi fyrir þig.
  • Uppáhaldsleikföng barnanna.
  • Ef þú átt skjöl eins og áverkavottorð, lögregluskýrslur eða annað sem tengist ofbeldinu hafðu það þá með þér líka.
Öryggi þitt eftir sambandsslit

Hafir þú farið frá maka þínum vegna heimilisofbeldis gæti verið að þú vildir halda þeim upplýsingum fyrir þig. Það er alfarið þín ákvörðun hvort þú segir fólki frá því að þú hafir búið við heimilisofbeldi. Ef þú telur að þú gætir ennþá verið í hættu gæti það aukið öryggi þitt að segja fjölskyldu þinni, vinum, kennurum barnanna þinna og vinnuveitanda þínum hvernig staðan er. Það dregur úr líkum á að þessir aðilar gefi fyrrverandi maka þínum óvart upplýsingar sem ekki eiga erindi til viðkomandi. Þessir aðilar verða einnig betur undir það búnir að aðstoða þig ef á þarf að halda.

Hafir þú farið að heiman en býrð ennþá í sama bæjarfélagi eða landshluta eru nokkur atriði sem þú ættir að huga að til að auka öryggi þitt.

  • Reyndu að einangra þig ekki eða koma þér í aðstæður þar sem þú ert varnarlaus.
  • Forðastu þá staði eins og verslanir, banka eða kaffihús sem þú fórst venjulega á þegar þið vorum saman.
  • Reyndu að breyta venjum þínum eins og þú getur.
  • Endurskoðaðu listann yfir þá sem mega sækja börnin þín í skóla og leikskóla og láttu þessa aðila vita um mikilvægi þess að eftir listanum sé farið.
  • Mundu að það er aðstoð og hjálp að fá víða. Sjá hér.
Ef ofbeldið heldur áfram

Í sumum tilvikum heldur ofbeldið áfram eftir að sambandinu er slitið. Ef svo er ættir þú að huga að eftirfarandi:

  • Haltu dagbók yfir þau áreiti sem þú verður fyrir.
  • Ef þú þarft að leita til læknis vegna áverka af hendi fyrrverandi maka óskaðu þá eftir áverkavottorði.
  • Gerðu ráðstafanir til að tryggja öryggi heimilisins:
    • Reykskynjarar, tryggar gluggakræjur, hreyfiskynjara á útiljós, skipta um skrár ef óvissa er með hver hefur lykil.
  • Leitaðu hjálpar. Hér er listi yfir aðila sem geta aðstoðað þig.