Áfall hefur verið skilgreint sem sterk streituviðbrögð í kjölfar ákveðinna óvæntra atburða. Fólk getur upplifað áfall í kjölfar ofbeldis. Þegar fólk hefur orðið fyrir ofbeldi er eðlilegt að fólk geti fundið fyrir streituviðbrögðum sem geta verið líkamleg, hugræn og tilfinningaleg. Það finna samt ekki allir fyrir slíkum einkennum eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi.
Nokkur dæmi um einkenni áfallastreitu:
- Að endurupplifa atburðinn í sífellu
- Einbeitingarerfiðleikar
- Ofurviðbrögð við áreiti, bregða við minnsta tilefni
- Ótti, kvíði
- Pirringur og reiði
- Svefnvandi og martraðir
Einkenni áfallastreitu líða oftast hjá en í einhverjum tilfellum getur hún haldið áfram mánuðum saman og orðið að áfallastreituröskun.
Ef þú hefur áhyggjur af því að vera með áfallastreituröskun þá getur verið gott fyrsta skref að leita til heilsugæslu eða sjálfstætt starfandi sérfræðinga eins og sálfræðinga.
Umfjöllun um heimilisofbeldi og hvert er hægt að leita eftir ofbeldi.