Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Ofbeldi barna gegn foreldrum

Kaflar
Útgáfudagur

Eðlilegt er að lítil börn slái einhvern tíma til foreldra sinna eða sýni erfiða hegðun. Þau eru að læra hvernig samskipti eiga að vera og stundum bera tilfinningarnar þau ofurliði. Ef hegðunin er hins vegar síendurtekin eða ekki er um smábarn að ræða er ástæða til að leita aðstoðar.

Stundum getur verið undirliggjandi ástæða hjá barni (vanlíðan, kvíði, hegðunarröskun, líkamleg veikindi o.fl.) sem brýst fram sem árásarhneigð og þá þarf að sjá til þess að fjölskyldan fái viðeigandi aðstoð. Stundum þurfa foreldrar stuðning til að kenna barninu að tjá tilfinningar og fá útrás án þess að beita ofbeldi.

Umfjöllun um heimilisofbeldi.

Hvenær skal leita aðstoðar?

Ef börn eru endurtekið að beita foreldra ofbeldi eða ef um fullorðna einstakling er að ræða skal leita aðstoðar:

Hægt er að leita til heilsugæslunnar, 112, sérfræðiþjónustu skóla, félagsþjónustu (barnavernd), barna- og fjölskyldustofu og hjá einkaaðilum.

Finna næstu heilsugæslu eða bráðamóttöku.