Eru lyfin örugg?

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Lyf eru mikið notuð. Þau eru þeim sem þau eru ætluð gagnleg og oft lífsnauðsynleg en í höndum annarra geta þau verið stórhættuleg og ungum börnum er mikil hætta búin ef þau komast í lyf.

Því er mælt með því á umbúðum lyfja að þau séu geymd þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mikill misbrestur er á því að fólk fari eftir þessum ráðum. Börnum á aldrinum 7 mánaða til 2ja ára er hættast og flest símtöl til Eitrunarmiðstöðvar eru vegna barna á þeim aldri. Með því að geyma lyfin á öruggum stað má komast hjá lyfjaeitrunum barna á þessum aldri. Það ætti að vera einfalt að fara eftir þeim ráðleggingum að geyma lyf örugg.

Stundum verða eftir einhver lyf sem ekki eru notuð. Öll lyf sem ekki eru notuð á að skila í apótek. Þetta gildir um öll lyfjaform, pillur, krem, dropa, lyfjaplástra og einnig hormónahringinn. Eftir notkun hans eru ennþá hormón til staðar í hringnum og honum þarf að skila í apótek. 

Inn á vef Lyfjastofnunar eru góðar ráðleggingar um lyfjaskil.

Var þetta efni hjálplegt?
Markmið vefsins er að veita upplýsingar um öll mál er varða heilsu. Allar ábendingar til að bæta vefinn eru vel þegnar.