Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Ófrjósemisaðgerðir

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Ófrjósemisaðgerð er nokkuð sem margir velta fyrir sér þegar þeir hafa tekið þá ákvörðun að eignast ekki börn í framtíðinni.

Aðgerðina mega einungis læknar sem hafa sérfræðiviðurkenningu í almennum skurðlækningum, kvensjúkdómalækningum og þvagfæraskurðlækningum framkvæma. Hægt er að bóka tíma án tilvísunar frá heimilislækni.

Heimilt er að framkvæma ófrjósemisaðgerð að ósk einstaklings sem náð hefur 18 ára aldri.

Aðgerðin felst í því að sáðrás karla og eggjaleiðurum kvenna er lokað þannig að sáðfrumur fari ekki í sæðið og eggin ekki niður í legið. Aðgerðin er oftast gerð í staðdeyfingu hjá körlum en svæfingu hjá konum. Sem getnaðarvörn er ófrjósemisaðgerð nánast 100% örugg. Aðgerðin er varanleg. 

Í parasambandi er mikilvægt að báðir aðilar koma að ákvörðun um ófrjósemisaðgerð.