Brjóstakrabbamein (e. breast cancer) er algengasta krabbameinið meðal kvenna og greinast um 235 konur á hverju ári hér á landi. Regluleg skimun fyrir brjóstakrabbameini getur lækkað dánartíðni vegna sjúkdómsins meðal kvenna um 20%.
Ávallt er hætta á að krabbamein dreifist frá brjósti yfir í önnur líffæri. Því fyrr sem krabbamein í brjóstum er greint því minni líkur eru á að það nái að dreifa sér og batahorfur eru betri. Í reglulegri skimun með röntgenmyndatöku af brjóstum (e. mammography) er mögulegt að greina brjóstakrabbamein áður en einkenni koma fram.
Konur á aldrinum 40-69 ára fá boð í brjóstamyndatöku á tveggja ára fresti og konur á aldrinum 70 til 74 ára fá boð á þriggja ára fresti. Boð koma frá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana.
Karlar geta fengið brjóstakrabbamein en um 1 karl greinist á móti hverjum 100 konum.
Brjóstamyndataka
Tilgangur skimunar er að greina sem fyrst krabbamein í brjóstum kvenna til að draga úr dánartíðni. Tvær myndir eru teknar af hvoru brjósti frá tveimur mismunandi sjónarhornum og eru brjóstin pressuð saman á milli tveggja platna í örfáar sekúndur á meðan röntgenmynd er tekin. Hægt er að taka mynd hvort sem konan situr eða stendur. Myndatakan tekur um 5 mínútur. Mikilvægt er að konur með brjóstapúða segi frá því áður en röntgenmyndin er tekin.
Kostir skimunar
- Betri batahorfur
Ókostir skimunar
- Óþægindi við skoðun – sumum finnst skoðunin óþægileg þar sem pressa þarf brjóstin vel saman til að ná góðri röntgenmynd af brjóstunum.
- Fölsk neikvæð niðurstaða – myndataka getur reynist neikvæð þó æxli sé til staðar t.d. ef það er hulið brjóstvef þannig að það sést ekki.
- Fölsk jákvæð niðurstaða – þá lítur út fyrir að á myndinni sé æxli til staðar sem reynist svo vera t.d. eðlilegur vefur eða góðkynja hnútur.
- Áhyggjur
Engin skimun er fullkomin. Ef þú finnur fyrir hnút í brjósti eða tekur eftir breytingu á brjóstum þínum skaltu hafa samband við lækni til að fá frekara mat. Læknirinn getur vísað þér áfram í frekari rannsóknir telji hann þörf á því.
Niðurstöður brjóstamyndatöku
Niðurstaða úr brjóstamyndatökunni kemur inná island.is innan þriggja vikna. Ef niðurstaða er eðlileg, færð þú boð í næstu skimun eftir 2 eða 3 ár eftir aldri þínum.
Tveir röntgenlæknar, að lágmarki, lesa úr myndunum. Ef eldri myndir eru til, eru þær bornar saman við þær nýju og metið hvort breytingar hafa orðið á brjóstvef.
Ef vísbendingar eru um breytingar á brjóstvef er hringt í þig og þér boðinn tími í sérskoðun brjósta.
Sérskoðun
Skoðunin tekur um klukkustund. Velkomið er að koma með aðstandanda til stuðnings ef aðstæður leyfa.
Eftirfarandi er oftast gert í sérskoðun brjósta:
- Læknisskoðun – Þreifað er eftir breytingum á brjóstum og í handarkrikum. Spurt er m.a. út í fjölskyldusögu um brjóstakrabbamein og fyrri sjúkdóma tengda brjóstum.
- Brjóstamyndataka – Teknar eru nýjar röntgenmyndir af brjóstunum.
- Ómskoðun - Brjóstið er ómskoðað með sónartæki til að meta meinið betur.
- Ástunga– Þörf getur verið á að gera ástungu til að ná vefjasýni úr meini til nákvæmari greiningar.
Ef niðurstöður sérskoðunar eru eðlilegar, þ.e. að ekki var um krabbamein að ræða, verður þú boðuð í næstu skimun eftir 2 eða 3 ár eftir aldri þínum.
Greinist krabbamein í sérskoðun er þér boðin meðferð.
Nánari upplýsingar
Hafir þú spurningar tengdar skimun fyrir brjóstakrabbameini er hægt að hafa samband við Samhæfingastöð krabbameinsskimana í síma 513 6700, alla virka milli milli kl. 8:30 – 12:00.