Áfengi og brjóstagjöf

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Áfengi eins og annað sem borðað er og drukkið getur skilað sér í brjóstamjólkina. Móður með barn á brjósti er því ráðlagt að nota ekki áfengi. Það er ekki vitað hversu mikið áfengismagn þarf til að valda skaða hjá barni á brjósti. Ólíklegt er talið að áfengi í litlu magni sé skaðlegt.  

Við neyslu áfengis skilar hluti alkóhólsins sér í brjóstamjólkina. Það tekur líkamann um tvær klukkustundir að losa sig við alkóhólið úr einu léttvínsglasi eða litlu bjórglasi. Ekki er hægt að flýta þessu ferli með vatns- eða kaffidrykkju, hvíld eða losun brjóstamjólkur. Mælt er með að því að móðir bíði tvær klukkustundir fyrir hvert léttvínsglas þar til hún gefur brjóst. Tvö léttvínsglös = fjórar klukkustundir. 

Ekki er nauðsynlegt henda brjóstamjólkinni eftir að hafa drukkið áfengi nema móðir finni til óþæginda í brjóstunum, áður en nægur tími er liðinn fyrir líkamann að útskilja áfengið. 

Mikil áfengisneysla dregur úr mjólkurframleiðslu, barnið verður syfjaðra og drekkur minna. Það hefur áhrif á heilaþroskann, dregur úr vexti barns og seinkar hreyfiþroska. Þegar móðir er undir áhrifum áfengis þá getur það einnig haft áhrif á getu hennar til að annast barnið.  

Nýfætt barn fæðist með óþroskaða lifur og þess vegna hefur áfengi meiri áhrif á það. Það tekur þriggja mánaða gamalt barn tvöfalt lengri tíma að útskilja alkóhól úr líkamanum en þann sem er fullorðinn. 

Áfengismisnotkun og vímuefnanotkun foreldra hefur afgerandi áhrif á þroska, hegðun og líðan barns. 

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína

Var þetta efni hjálplegt?
Markmið vefsins er að veita upplýsingar um öll mál er varða heilsu. Allar ábendingar til að bæta vefinn eru vel þegnar.