Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Fósturhreyfingar

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Það er skemmtilegt og áhugavert að kynnast barni sínu á meðgöngunni. Móðirin fylgist með daglegum hreyfingum barnsins sem gefur henni tækifæri til þess að vera í nánum tenglsum við það og þannig lærir hún að þekkja hreyfingarmynstur þess. Hvert barn er einstakt og því er mikilvægt að þekkja hvað er eðlilegt fyrir barnið þegar kemur að tíðni og mynstri hreyfinga. Barnið á að halda áfram að hreyfa sig reglulega út meðgönguna. Hreyfingar barnsins eru besta merkið um að barninu líði vel.

Fyrstu hreyfingar barnsins eru eins og loftbólur eða ólga í maganum en smám saman skynjar móðirin greinileg spörk og hreyfingar sem gefa henni staðfestingu á lífinu sem vex innra með henni. Konur finna sífellt meira fyrir hreyfingum barnsins upp að 32 vikum en eftir það haldast þær svipaðar út meðgönguna. Hins vegar breytist skynjun fósturhreyfinga þegar dregur nær fæðingunni. Barnið færist neðar í grindina og skorðar sig sem veldur því að tilfinningin fyrir hreyfingum þess verður önnur. Barnið tekur meira pláss með aukinni stærð og getur því ekki hreyft útlimi eins mikið. Eftir því sem fæðingin nálgast aukast samdrættir í leginu sem getur valdið því að hreyfingar finnast ekki eins vel.

Þekktu hreyfingarnar

Ef þú ert óviss hvort einhverjar breytingar hafa orðið getur verið gott að koma sér fyrir í ró og næði til þess eins að meta hreyfingar barnsins. Taktu eftir hversu lengi barnið er að hreyfa sig tíu sinnum. Hreyfingarnar geta falið í sér spörk eða hnoð. Hiksti er ekki hreyfing. Ef þú finnur fyrir 10 hreyfingum á innan við 2 klukkustundum og barnið heldur áfram að hreyfa sig eins og venjulega þá getur þú verið róleg. Ekki er mælt með notkun tækja til heimanota til að nema hjartslátt því það er ekki nægjanlegt til að meta vellíðan barnsins.

Hlustaðu á eigið innsæi

Það er alltaf mikilvægt að hlusta á eigið innsæi. Þó flestar meðgöngur gangi vel fyrir sig þá hefur verið sýnt fram á að minnkaðar hreyfingar barns geti bent til þess að barnið sé í vanda. Ef hreyfingar barns eru minni en þú ert vön að finna þá ættir þú að ræða við ljósmóður eða lækni. Ekki bíða til morguns eða eftir næsta tíma í mæðravernd.

Hvert á að hafa samband

Heilsugæslustöðin þín
Á hverri heilsugæslustöð eru ljósmæður og læknar sem veita símaráðgjöf alla virka daga frá kl. 08:00 – 16:00.

Utan dagvinnutíma
Á höfuðborgarsvæðinu er ráðlagt að leita til Meðgöngu- og sængurlegudeildar Landspítala, sími 543-3220.

Á landsbyggðinni leita konur til sinnar Heilbrigðisstofnunar. Vaktsími 1700.

Finna næstu heilsugæslustöð eða bráðamóttöku hér.