Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Réttur þinn sem manneskja

Kaflar
Útgáfudagur

Öll erum við manneskjur sem njótum jafnréttis samkvæmt lögum og mannréttinda samkvæmt alþjóða lögum. Sem manneskja hefur þú rétt til að:

  • Vera eins og þú ert.
  • Segja nei án þess að fyllast sektarkennd.
  • Vera meðvituð um og stolt af andlegu atgerfi þínu.
  • Finna til reiði og tjá þínar tilfinningar.
  • Biðja um aðstoð, jafnvel þó öll sund virðist lokuð.
  • Þér sé sýnd virðing og komið fram við þig sem manneskju.
  • Taka órökréttar ákvarðanir.
  • Gera mistök og standa ábyrg gagnvart þeim.
  • Skipta um skoðun.
  • Segja: „Ég veit ekki, mér er sama, ég er ósammála og ég skil ekki”.
  • Gefa ekki skýringar, eða biðjast afsökunar, til að réttlæta gerðir þínar.
  • Vænta þess að skoðunum þínum verði sýnd viðeigandi virðing.
  • Virða þarfir þínar til jafns við þarfir annarra.
  • Láta langanir þínar í ljós, jafnvel þó þær ráði engum úrslitum.
  • Vera stolt af líkama þínum eins og hann er.
  • Þroskast, læra og breytast.
  • Virða aldur þinn og reynslu.
  • Lifa því trúarlífi sem þú sjálf kýs.
  • Gera stundum kröfur til annarra.