Mögulegar ástæður ofbeldis

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Það er erfitt að segja til um af hverju fólk beitir ofbeldi. Ástæður geta verðið margar og mismunandi en allt í kringum okkur sjáum við hinn sterka, stóra, valdamikla beita hinn veikari, minni og valdalausari ofbeldi og kúgun. Þetta er ljóst bæði í samskiptum manna og þjóða. Ástæðurnar eru því ef til vill djúpstæðari en okkur finnst gott að horfast í augu við. Hér eru nokkrir þættir sem legið geta að baki því að fólk beiti ofbeldi eða kúgun.

  • Til þess að stjórna hinum aðilanum, hvað hann gerir og hvernig honum líður.
  • Gerandi heldur að um sé að ræða eðlilega hegðun.
  • Geranda finnst hann hafa eignarhald yfir hinum.
  • Gerandi þarf, að eigin mati, að hafa völdin í sínum höndum.
  • Gerandi óttast að missa virðingu haldi hann ekki völdunum.
  • Gerandi kann ekki aðrar leiðir til að takast á við reiði og vonbrigði.
  • Gerandi hefur komist upp með að fá sitt fram með því að beita ofbeldi eða kúgun.

Höfum í huga að þó mögulega megi finna ástæður ofbeldis er ofbeldi aldrei réttlætanlegt eða viðurkennt og er alltaf sök gerandans.

Var þetta efni hjálplegt?
Markmið vefsins er að veita upplýsingar um öll mál er varða heilsu. Allar ábendingar til að bæta vefinn eru vel þegnar.