Sykur í matvælum

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Sykur er náttúrulega til staðar í sumum matvælum, til dæmis sem mjólkursykur í mjólkurvörum og ávaxtasykur í ávöxtum og hreinum söfum og þrúgusykur í kornvörum.

Hvað er viðbættur sykur?

Um viðbættan sykur er talað þegar sykri er bætt í matvörur við framleiðslu. Það er ekki bara hvítur sykur sem telst til viðbætts sykurs, heldur einnig:

  • Síróp
  • Hrásykur
  • Púðursykur
  • Mólassi
  • Þrúgusykur
  • Ávaxtasykur

Það skiptir ekki máli hvaða nafn eða tegund af sykri er bætt í matvöru. Það er viðbótin sem slík sem skiptir máli. Almennt er ekki hollara eða betra að bæta í matvælin einni tegund sykurs umfram aðra. 

Á Hollara vali eru sýndir sykurmola fyrir sykur, hrásykur, þrúgusykur og ávaxtasykur sem er bætt í vörur og talið er upp í innihaldslýsingu vörunnar. Einnig er sýnt hversu mikið er af ávaxtasykri í söfum þó honum sé ekki bætt við. Til aðgreiningar er slíkur sykur sýndur sem holur sykurmoli. Mælt er með að borða heila ávexti í staðinn fyrir að drekka safa.

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Hér getur þú tekið prófið, séð hver staðan er og hvernig þú getur bætt þig.

Samnorræna merkið Skráargatið, sem tekið hefur verið upp á Íslandi, gerir það einfalt að velja hollara. 

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína

Var þetta efni hjálplegt?
Markmið vefsins er að veita upplýsingar um öll mál er varða heilsu. Allar ábendingar til að bæta vefinn eru vel þegnar.