Fjöllyfjameðferð er almennt skilgreind sem regluleg notkun fimm eða fleiri lyfja.
Fjöllyfjameðferð getur verið nauðsynleg þegar fólk er með fleiri en einn sjúkdóm eða þarf fleiri en eitt lyf til að meðhöndla sama sjúkdóm.
Lyf geta haft áhrif á hvert annað og er þá talað um milliverkanir. Þegar nýju lyfi er ávísað skiptir máli að læknir hafi aðgang að upplýsingum um öll lyf og fæðubótarefni sem skjólstæðingur tekur reglulega.
Því fleiri lyf sem einstaklingur notar því meiri er hættan á aukaverkunum, lyfjatengdum veikindum og milliverkunum.
Fæðubótarefni geta truflað virkni lyfja og haft áhrif á öryggi og árangur meðferðar.
Ráðlagt er að læknir eða lyfjafræðingur fari yfir öll lyf skjólstæðings að minnsta kosti einu sinni á ári.
Við langvarandi lyfjanotkun er lykilatriði að meta reglulega hvort meðferðin skili tilætluðum árangri.
Ef grunur kemur upp um að lyf hafi ekki tilætluð áhrif eða valdi aukaverkunum, ætti að ræða það við lækni, hjúkrunarfræðing eða lyfjafræðing.
Hægt er að fá lyfjaskömmtun í apótekum. Lyfjaskömmtun auðveldar gjarnan lyfjatökuna og eykur líkur á að lyf séu rétt tekin.
Oftast eru útbúnir litlir pokar, hver og einn inniheldur einn skammt.
Pokinn er merktur með nafni, kennitölu, dagsetningu og hvenær dags á að taka lyfin.
Nöfn lyfjanna og skammtastærðir eru prentaðar á hvern poka til upplýsingar.