Það er sárasjaldan ástæða til að bólusetja ekki barn.
Ef eitthvað af þessu á við um þitt barn skal ræða það við lækni eða hjúkrunarfræðing á heilsugæslunni:
- Barnið er veikt af einhverri ástæðu eða er með hita (þá er venjulega beðið með bólusetninguna þangað til barninu er batnað).
- Barnið hefur fengið hliðarverkun eða aukaverkanir í kjölfar fyrri bólusetninga.
- Barnið hefur fengið alvarlega ofnæmissvörun eftir að hafa neytt eggja (þ.e. munnurinn og kokið hefur bólgnað, lost, erfiðleikar með öndun eða útbrot um allan líkamann).
- Barnið er að taka ákveðin lyf, einkum steralyf.
- Barnið er haldið alvarlegum langvinnum sjúkdómi, svo sem ónæmisgalla.