Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Bakslag

Kaflar
Útgáfudagur

Ekki örvænta! Það er býsna algengt að fólk fái bakslag einu sinni eða oftar áður en það hættir endanlega tóbaksnotkun. Það er ekki allt farið í vaskinn og ástæðulaust fyrir þig að byrja að nota tóbak aftur. Hér koma í staðinn nokkur ráð um hvernig réttast er að halda áfram til að ná því takmarki að hætta endanlega tóbaksnotkun.

  • Losa þig við allt tóbak ef þú átt eitthvað.
  • Segja sjálfum þér að þetta bakslag hafi verið síðasta skiptið sem þú notar tóbak.
  • Ekki velta þér upp úr samviskubiti. Reyna í staðinn að átta þig á hvers vegna þú fórst aftur að nota tóbak svo þú getir lært af þessu. Þá gengur betur að takast á við álíka uppákomu næst og þar með forðast frekari bakslög.
  • Minna þig á að þú hefur ákveðið að hætta.
  • Leita hjálpar og aðstoðar hjá þeim sem í kringum þig eru, bæði þeim sem þú hittir daglega og á heilsuvera.is.
  • Muna, bakslag þýðir ekki að þig vanti viljastyrk. Það þýðir heldur ekki að tóbakið sé þér svo ómissandi að þú getir ekki rifið þig frá því. Bakslagið þýðir bara að þig vantar frekari undirbúning til að ráða við einmitt þessa uppákomu sem fékk þig til að nota tóbak. Næst þegar þú lendir í sömu klípu mun undirbúningur þinn duga betur.

Hægt er að fá meðferð og stuðning við að hætta tóbaksnotkun á netspjalli hér á síðunni og í síma 5131700.

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.

Smelltu hér til að meta heilsuhegðun þína