Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Ferðin að nikótínleysi

Kaflar
Útgáfudagur

Það að hætta að reykja, nota reyklaust tóbak eða aðrar nikótínvörur, er ekki atburður sem á sér stað í eitt skipti, heldur er það ferli – eða röð af atburðum - sem tekur tíma. Hér á eftir er farið yfir í stórum dráttum hvað gerist í því ferli þegar fólk breytir um hegðun, þ.e. hættir nikótínnotkun og gengið er út frá því að það gerist í ákveðnum þrepum (kallast ,,þverkenningalíkan um hegðunarbreytingu”). 

Algengt er að fólk byrji aftur að nota nikótín eftir að hafa hætt og er það talið eðlilegt bakslag í þessu ferli.

Ferlið í átt að nikótínleysi

Foríhugun: Ég ætla ekki að hætta á næstu 6 mánuðum

Foríhugun
Það er ekki á stefnuskránni að hætta nikótínnotkun næsta hálfa árið . . . en það sakar ekki vita meira um tóbak og skaðsemi þess.

Á þessu þrepi er ekki ætlunin að hætta notkun á næstunni. Þetta getur verið vegna þess að þú áttir þig ekki á afleiðingum notkuninnar. Ef til vill hefur þú ekki fengið næga fræðslu og upplýsingar um skaðsemina og forðast að hugsa um hana eða afla þér upplýsinga. Hugsanlega hefur þú oft reynt að hætta og hefur misst trúna á að það takist. Þú ættir ef til vill að íhuga að bæta við þekkingu þína á skaðsemi nikótínnotkunar og hugsa málið upp á nýtt.

Hlutverk ,,vinarins”
Er til staðar til að ræða málin, hvetur og fræðir, eftir því sem færi gefst.

Íhugun: Ég vil hætta nikótínnotkun innan 6 mánaða

Þú ert alvarlega að hugsa um að hætta að nota nikótín. Þú ert að vega og meta kosti og ókosti notkunar. T.d.: ,,Hvað græði ég á því að hætta?"

Þú ætlar að hætta að nota nikótín - en ekki alveg strax. Þú veist um ókosti þess að nota nikótín en sérð jafnframt kosti þess að neyta þess. Togstreitan milli kostanna og ókostanna getur valdið því að þú sért á báðum áttum með þessa ákvörðun. Þetta getur valdið því að oft tekur langan tíma að fara yfir á næsta þrep. Sannfæring þín fyrir því að hætta nikótínnotkun er enn að vegast á við ókostina. Það kann að vera að þú hafir litla þolinmæði fyrir ábendingum um að hætta nikótínnotkun. Ef til vill er sannfæring þín fyrir nauðsyn þess að hætta ekki nógu sterk.  Til að komast af þessu þrepi þarf sannfæring þín að vera sú að kostirnir við að hætta séu meiri ókostirnir. Því er snjallt að rifja upp skaðsemi tóbaksnotkunarinnar.

Hlutverk ,,vinarins”
Talar um ástæðurnar fyrir nikótínnotkuninni og kostina við að hætta notkun.

Undirbúningur: Ég ætla að hætta nikótínnotkun innan mánaðar

Þú hefur tekið ákvörðun um að hætta að nota nikótín - og kannski hefur ákveðinn dagur orðið fyrir valinu. Þú ert að vinna að því að undirbúa ákvörðun þína.

Þú segir öðrum frá því að þú ætlir að hætta. Þú ert til í að taka við ábendingum og aðstoð sem miða að því að þér takist að hætta. Á þessu þrepi er algengt að fólk setji sig í samband við heilbrigðisstarfsfólk og ræði þá áætlun sína að hætta nikótínnotkun. 

Hlutverk ,,vinarins”
Bendir á leiðir sem gagnast við að hætta notkun nikótíns, býður aðstoð sína og hrósar fyrir ákvörðunina.

Framkvæmd: Ég hætti nikótínnotkun fyrir minna en 6 mánuðum

Fyrstu 6 mánuðina er hættan á bakslagi mikil. Þú veist að kostirnir við það að hætta notkun nikótíns eru meiri en ókostirnir en þetta er erfitt. 

Mikilvægt er fyrir þig að forðast freistandi aðstæður sem auka á hættuna á bakslagi (barir, kaffihús, uppáhalds reykstaðurinn . . . ) og leggja áherslu á hegðun sem styrkir þig í þeirri ákvörðun að hætta (aukin hreyfing, holl fæða og önnur heilsuefling).

Hlutverk ,,vinarins”
Hrósar, styður og bendir á leiðir til að lágmarka/koma í veg fyrir bakslag.

Viðhald: Ég hætti tóbaksnotkun fyrir meira en 6 mánuðum

Eftir 6 mánuði kemur hugsunin um nikótín sjaldnar upp í hugann. Þú finnur ef til vill að sjálfsöryggi þitt gagnvart slíkum hugsunum hefur aukist.

Eins og í framkvæmdaþrepinu er mesta áherslan á að koma í veg fyrir bakslag. Hefðbundnar kenningar um hegðunarbreytingu líta á þetta þrep sem lokasigur en samkvæmt þverkenningalíkaninu er nikótínlaust líf ævilangt verkefni einstaklings sem hefur verið háður nikótíni. Þú upplifir tímabil sem eru auðveld og svo koma önnur sem reynast erfiðari allt eftir því hvað er í gangi í lífinu og innra með þér. 

Hlutverk ,,vinarins”
Hrósar, styður og bendir á hættur í umhverfinu (sem leiða til nikótínnotkunar) og hvernig hugarástand getur aukið líkurnar á bakslagi.

Hér er að finna 12 ráð til að verða nikótínlaus.

Hægt er að óska eftir meðferð og stuðning við að hætta notkun nikótíns á netspjalli hér á síðunni, í tölvupósti og í síma 5131700.  Biðtími er um 2 til 3 virkir dagar.

Hegðun hefur mest áhrif á lífsgæði og líðan að erfðum undanskildum. Sjáðu hvernig staðan er hjá þér.